Að fá meistara og fagfólk með tilskilin réttindi til starfa er ákveðin trygging fyrir færni, menntun, þekkingu og réttum vinnubrögðum. Með því að kynna sér neðangreindar upplýsingar er mögulega hægt að koma í veg fyrir kostnaðarsamt tjón ef vinna þarf verkið upp á nýtt enda getur fagfólk skipt sköpum í því hver útkoman verður.
Sýnishorn af verksamningi fyrir minni verk - hægt að nota fyrir flest einföld verk (handskrifanleg útgáfa).
Sýnishorn af verksamningi fyrir stærri verk - umfangsmeiri verk þar sem oft er miðað við yfir 7,5 milljónir króna (handskrifanleg útgáfa).
Gátlisti yfir hvað er gott að hafa í huga við gerð verksamnings
- Gátlisti verkkaupa vegna byggingaframkvæmda.
- Leiðbeiningar með gátlista.
- Stutt verklýsing til að skilgreina verkið sem verktaki á að vinna.
- Hvað kostar verkið? Er þetta tilboðsverð eða tímavinna? T.d. ef um er að ræða tímavinna þá er mikilvægt að tilgreina vinnutíma í samningi.
- Aukaverk – Oft breytist umfang verks eftir að verksamningur er gerður þá er mikilvægt að báðir aðilar samþykki þær breytingar á sérstöku eyðublaði. Sýnishorn af samningi um aukaverk.
Annað sem getur verið gott að hafa í huga
Það sem þú sem verkkaupi ættir að ganga úr skugga um og spyrja meistara um:
- Hvort sá aðili sem kemur til með að vera í forsvari fyrir verkinu sé með meistararéttindi, nálgast má lista yfir iðnmeistara á vef HMS og Sýslumanns.
- Hvort verkið falli undir Lög um mannvirki og byggingarreglugerð og sé þar með leyfisskilt.
- Hvort verkið sé af þeirri stærðargráðu að ábyrgð eiganda falli undir Reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir við tímabundna mannvirkjagerð nr. 547/1966 og breytingarreglugerð nr. 504/1999.
- Hvort hráefni eða íhlutir þurfi að fullnægja kröfum samkvæmt Lögum um byggingarvörur og vera CE merktir, sjá nánari upplýsingar um byggingarvörur á vef HMS.
Frekari upplýsingar
- Á vef SART er hægt að taka rafmagnsprófið. Neytendur geta tekið rafmagnspróf ef þeir hafa grun um að ekki sé allt eins og best verður á kosið í rafmagnsmálum á heimilinu eða á vinnustað.
- Á vef HMS má nálgast öll blöð Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins, svokölluð Rb-blöð. Í blöðunum er fjallað um helstu málefni sem snerta byggingariðnaðinn og niðurstöður rannsókna sem geta haft áhrif á byggingaraðferðir.
- Hér má nálgast upplýsingar um hvernig megi forðast vatnstjón.