Beint í efni

12 þúsund nemendur taka þátt í Stóru stærð­fræði­keppn­inni

Stóra stærðfræðikeppninni 2026 hefst í dag en í fyrra svöruðu nemendur 1,7 milljónum spurninga.

Stóra stærðfræðikeppnin á vegum Evolytes og Andvara

Rúmlega 12 þúsund nemendur úr 130 grunnskólum um land allt taka þátt í Stóru stærðfræðikeppninni 2026 sem hefst í dag. Á meðan keppnin stendur yfir verður hægt að fylgjast með fjölda svara nemenda í rauntíma á vef keppninnar. Þar verða einnig birtar vikulegar upplýsingar um stöðu skólanna og sameiginleg verðlaun þátttakenda. Keppnin stendur yfir í fimm vikur eða til 4. desember.

Keppnin er haldin annað árið í röð á vegum íslenska menntatæknifyrirtækisins Evolytes sem er aðildarfyrirtæki SI í samstarfi við Andvara farsældarhraðal. Í tilkynningu segir að markmiðið sé að efla áhuga barna á stærðfræði með nýstárlegum og skemmtilegum hætti. Nemendur leysa stærðfræðiverkefni í stafrænum ævintýraheimi Evolytes þar sem nám og leikur fléttast saman. Verkefnin aðlagast getu hvers nemanda og gefa þannig öllum tækifæri til að taka þátt og takast á við áskoranir við sitt hæfi. Nemendur safna réttum svörum fyrir skólann sinn og hlýtur sá skóli verðlaun þar sem nemendur svara að meðaltali flestum spurningum. Jafnframt vinna allir þátttakendur að sameiginlegu markmiði þar sem nýjar leikjaupplifanir og verðlaun opnast eftir því sem heildarfjöldi svara eykst. 

Yfir 1,7 milljón spurninga svarað í fyrra 

Stóra stærðfræðikeppnin var fyrst haldin haustið 2025 og tóku þá um 9.000 nemendur þátt. Á fimm vikum svöruðu þeir samanlagt yfir 1,7 milljón stærðfræðispurninga. Nemendur í sigur­skólanum svöruðu að meðaltali 2.402 spurningum hver sem jafngildir verkefnafjölda í um sex stærðfræðinámsbókum. Í tilkynningu segir jafnframt að með keppninni sé leitast við að efla sjálfstraust nemenda í stærðfræði, hvetja þá til að takast á við nýjar áskoranir og sýna fram á að æfing og þrautseigja skili árangri.