Beint í efni

Aðalfundur SI

Aðalfundur SI fór fram í Norðurljósum í Hörpu 9. mars.

Aðalfundur SI

Aðalfundur SI fór fram í Norðurljósum í Hörpu fimmtudaginn 9. mars kl. 10-12.

Á fundinum var hefðbundin dagskrá aðalfundar. Árni Sigurjónsson, formaður SI, bauð gesti velkomna. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár var kynnt og lagði framkvæmdastjóri fram til úrskurðar endurskoðaða ársreikninga samtakanna fyrir liðið almanaksár, með athugasemdum endurskoðanda. Lögð var fram tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár og launakjör stjórnarmanna. Lýst var niðurstöðum í kjöri meðstjórnenda þar sem kosið var um fjögur sæti. Einnig var kynnt kjör í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins. Þá var kosið um löggiltan endurskoðanda, kjörstjóra og aðstoðamenn. Í lok fundar var farið í önnur mál. Fundarstjóri var Guðbjörg Helga Hjartardóttir, lögmaður.

Hér er hægt að nálgast ársskýrslu SI fyrir árið 2022.

Kapa-Arskyrsla-SI-2022

Myndir: BIG

Aðalfundur SI - Samtök Iðnaðarins