Beint í efni

Áforma að leggja nýja há­hraða­gagna­strengi

Í Morgunblaðinu og mbl.is er sagt frá áformum um nýja háhraðagagnatengingar neðansjávar.

Endurkjörinn formaður Samtaka gagnavera

„Verkefnið mun stuðla að því að Ísland verði einn af lykilstöðum fyrir háþróaðar gervigreindar- og upplýsingatæknilausnir á alþjóðlegum vettvangi og leiða til þess að íslenskur gagnaversiðnaður mun áfram stuðla að útflutningsvexti og tækniþróun á Íslandi.“ Þetta er haft eftir Birni Brynjúlfssyni, forstjóra Borealis Data Center og formanni Samtaka gagnavera, í Morgunblaðinu og á mbl.is. En bandaríska fjar­skipta- og gagnaversfyrirtækið Modularity og Borealis Data Center hafa gengið til samstarfs um verkefni sem felur í sér að leggja háhraðagagnatengingar neðansjávar fyrir alþjóðlega gagnaflutninga til og frá Íslandi og bjóða upp á gagnaversþjónustu fyrir stór verkefni á sviði gervigreindar.

Í fréttinni kemur fram að Modularity sérhæfir sig meðal annars í þróun öflugra neðansjávar fjarskipta- og gagnastrengja en Borealis Data Center rekur gagnaver hér á landi og í Finnlandi.

mbl.is, 5. september 2024.

Innherji, 5. september 2024.