Beint í efni

Beint streymi frá málstofu um íslenskt námsefni

Málstofa um íslenskt námsefni fer fram í Laugalækjarskóla kl. 14-16 í dag.

Málstofa um íslenskt námsefni

Samtök menntatæknifyrirtækja, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Kennarasamband Íslands, Félag íslenskra bókaútgefenda, Hagþenkir, Þróunarsjóður námsgagna, mennta- og barnamálaráðuneytið, Rannís, ásamt skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar standa fyrir málstofu með yfirskriftinni Íslenskt námsefni – hvað er til? í dag mánudaginn 19. ágúst kl. 14.00-16.00 í Laugalækjarskóla.

Fundarstjóri er Árni Árnason, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Dagskrá

  • Ávarp - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
  • Námsgögn eru lykillinn - Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ
  • Bókaútgefendur - hornsteinar námsgagnaútgáfu - Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri IÐNÚ útgáfu og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
  • Kennarinn í kennslustofunni - Guðbjörg Íris, kennari í Rimaskóla
  • Heimasaumaðar lausnir framhaldsskólanna - Súsanna Margrét Gestsdóttir, námsbrautarformaður menntunar framhaldsskólakennara við Háskóla Íslands
  • Mikilvægi samfélagslegs frumkvæðis á landsbyggðinni - Huld Hafliðadóttir forstöðukona og stofnandi STEM Húsavík og STEM Ísland
  • Nýsköpun í skólastarfi - Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir, deildarstjóri Mixtúru, sköpunar- og upplýsingatæknivers skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur
  • Gervigreind kennd á íslensku og samræmt námsmat - Héðinn Steingrímsson, stofnandi Skákgreind / Affekta
  • Námsefni til framtíðar - Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
  • Framtíð námsgagnagerðar á Íslandi - Íris E. Gísladóttir, stofnandi Evolytes og formaður Samtaka menntatæknifyrirtækja
  • Kl. 16:00 Kaffi og spjall, námsefni til sýnis fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Vísi


Á mbl.is er hægt að fylgjast með beinu streymi.


Stöð 2/Vísir, 19. ágúst 2024.