Beint í efni

Fulltrúar SI í Brussel

Fulltrúar Samtaka iðnaðarins áttu fundi með hagaðilum í evrópsku atvinnulífi, fulltrúum stofnana og fulltrúum Íslands í Brussel.

Stjórn Samtaka iðnaðarins, ásamt fyrrum stjórnarmönnum, framkvæmdastjóra og yfirlögfræðingi heimsóttu Brussel í Belgíu dagana 21.–24. september. Hópurinn samanstóð af 17 manns og átti fundi með hagaðilum í evrópsku atvinnulífi, fulltrúum stofnana og fulltrúum Íslands í Brussel þar sem meðal annars var rætt um samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar, stöðu og þróun EES-samningsins, orku- og loftslagsmál og viðskipta- og efnahagslegt öryggi með tilliti til breyttrar heimsmyndar.  

European Aluminium 

Paul Voss, framkvæmdastjóri European Aluminium, tók á móti hópnum og fór yfir stöðu áliðnaðar í Evrópu og helstu áherslur samtakanna. Miklar breytingar hafa átt sér stað í starfsumhverfi evrópsks áliðnaðar þar sem samkeppnishæfni, orkuöryggi, kolefnishlutleysi og aukið efnahagslegt öryggi hafa verið í forgangi hjá ESB.  

Sendiráð Íslands  

Sendiherra Íslands, Stefán Haukur Jóhannesson, tók á móti hópnum í sendiráði Íslands þar sem hópurinn fékk kynningu frá sendiráðsnautum á forgangsmálum sem varða iðnaðinn. Rætt var um stöðuna í EES-samstarfinu, orkumál, viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS og CBAM), iðnaðarhraðall ESB, nýjan samkeppnissjóð ESB, löggjafartillögu um mikilvæg og lífsnauðsynleg lyf, viðskiptastefnu ESB og tollamál. Í framhaldi stóð sendiherrann fyrir móttöku í sendiherrabústaðinum þar sem gestir fengu tækifæri til að ræða málin nánar. 

EFTA, Eftirlitsstofnun EFTA og Uppbyggingasjóður EES 

Þórður Jónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri EFTA, ásamt fulltrúum stofnuninnar, fóru yfir stöðu EES-samningsins og helstu áskoranir. Aukin áhersla ESB á efnahagslegt öryggi, viðnámsþrótt og viðskiptavernd hefur haft í för með sér nýjar áskoranir fyrir EES/EFTA-ríkin. Rætt var um hvernig tryggja megi að stefna og aðgerðir ESB á sviði efnahagslegs öryggis skerði ekki stöðu Íslands og annarra EES/EFTA-ríkja á innri markaðnum.  

Árni Páll Árnason, stjórnarmaður ESA, ásamt fulltrúum kynntu hlutverk stofnuninnar og helstu áherslumál. Árni lagði áherslu á skuldbindingar Íslands við innleiðingu og mikilvægi þess að því væri fylgt eftir með skilvirkum og samræmdum hætti til að tryggja jafna samkeppnisstöðu og virkni innri markaðarins. Þá var sérstaklega rætt um hlutverk ESA við eftirlit með samkeppni og ríkisaðstoð. 

Ragna Fidjestol, framkvæmdastjóri Uppbyggingarsjóðs, hélt kynningu fyrir hópinn þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi þess að sjóðurinn stuðli að nýsköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærri þróun. Þá var rætt um tækifæri íslensks atvinnulífs til þátttöku í verkefnum sjóðsins og mikilvægi þess að auka tengsl og samstarf fyrirtækja og stofnana þvert á landamæri. 

Business Europe 

Hópurinn heimsótti jafnframt BusinessEurope, stærstu samtök atvinnulífs í Evrópu, þar sem Markus Beyrer, framkvæmdastjóri, tók á móti hópnum þar sem farið var yfir helstu áherslumál evrópsks atvinnulífs. Þar voru meðal annars rædd orku- og umhverfismál, iðnaðarstefna ESB, einföldun regluverks og svokallaðar bandormstillögur framkvæmdastjórnar ESB, auk áskorana á innri markaðnum og mála tengdum viðskiptum og efnahagslegu öryggi. 

NATO 

Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá NATO ásamt fulltrúum, tók á móti stjórn í höfuðstöðvum NATO. Í samtali sínu lagði hann áherslu á mikilvægi öryggis og viðnámsþróttar í breyttri heimsmynd þar sem samstarf stjórnvalda og einkageirans gegnir sífellt stærra hlutverki. Þá var rætt um mikilvægi öflugra innviða og þátttöku íslenskra fyrirtækja í nýsköpunarsjóðum á vegum NATO.  

Á myndinni sem er tekin fyrir utan byggingu Evrópusambandsins í Brussel eru í fremri röð, talið frá vinstri, Freyr Friðriksson, Hjörleifur Stefánsson, Viðar Erlingsson, Þorsteinn Víglundsson, Árni Sigurjónsson, Bergþóra Halldórsdóttir og  Vignir S. Halldórsson. Í aftari röð, talið frá vinstri, eru Hjörtur Sigurðsson, Jón Eðvald Malmquist, Lilja Björk Guðmundsdóttir, Sigrún Helgadóttir, Guðrún Halla Finnsdóttir, Sigurður Hannesson, Arna Arnardóttir, Magnús Helgason og Jónína Guðmundsdóttir.
Í heimsókn hjá BusinessEurope.
Í heimsókn hjá European Aluminium.
Hópurinn saman kominn í sendiráði Íslands í Brussel.
Í heimsókn hjá Uppbyggingarsjóði EES.
Á fundi hjá EFTA.