Beint í efni

Fulltrúi SI á norrænum fundi um mannauð í mann­virkja­iðn­aði

Árlegur fundur norrænna systursamtaka SI í mannvirkja- og byggingagreinum fór fram í Malmö í Svíþjóð.

Fulltrúi Samtaka iðnaðarins, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, tók þátt í árlegum fundi norrænna systursamtaka SI í mannvirkja- og byggingagreinum sem haldinn var í Malmö í Svíþjóð dagana 15.–17. september. Samstarfið hefur staðið í nær tvo áratugi og á fundunum bera fulltrúar landanna saman reynslu og lausnir á sameiginlegum áskorunum í mannauðsmálum, meðal annars varðandi iðnmenntun, færnimisræmi, tengsl atvinnulífs og skóla og menntun á háskólastigi. 

Dagskráin í Malmö endurspeglaði vel þær áskoranir sem Norðurlöndin standa frammi fyrir. Sérstök áhersla var lögð á hvernig styrkja megi tengsl menntakerfis og atvinnulífs, bregðast við fyrirsjáanlegri færniþörf og skapa fjölbreyttari leiðir inn á vinnumarkaðinn. 

Styrkja tengsl nemenda, skóla og fyrirtækja

Hulda Birna segir að athygli hafi vakið hversu markvisst sænsk samtök, fyrirtæki og opinberir aðilar vinni saman að því að skapa leiðir fyrir fólk inn eða aftur inn á vinnumarkaðinn. Þar sé meðal annars byggt á samstarfi ríkis, sveitarfélaga, fræðsluaðila og atvinnulífs. Í ákveðnum úrræðum geti einstaklingar haldið atvinnuleysisbótum á meðan þeir byggja upp færni sem eftirspurn er eftir á vinnumarkaði. 

Á fundinum var meðal annars fjallað um starf Galaxen sem vinnur með fyrirtækjum í byggingariðnaði að því að skapa fólki leiðir inn á vinnumarkaðinn og styðja við áframhaldandi þátttöku þess í atvinnulífinu. Þar er meðal annars reynsla og þekking fólks sem hefur þurft að hverfa frá fyrri störfum vegna heilsubrests nýtt með öðrum hætti. Einstaklingar geta til dæmis tekið að sér hlutverk leiðbeinenda fyrir unga lærlinga hjá fyrirtækjum og miðlað þannig áralangri verkþekkingu og góðum starfsháttum til næstu kynslóðar fagfólks. 

Rætt var um mikilvægi slíkra leiðbeinenda og verkstjórnenda á vinnustöðum, hvernig tryggja megi gæði handleiðslu og hvernig hvetja megi fleiri til að taka að sér þetta mikilvæga hlutverk. 

Þátttakendur báru jafnframt saman reynslu Norðurlandanna af vinnustaðanámi og mismunandi leiðum til að styrkja tengsl nemenda, skóla og fyrirtækja. Athygli vakti hversu mikið traust er lagt á fyrirtækin þegar kemur að verklegri þjálfun nemenda. Námsframvinda tekur mið af þeirri þjálfun sem fram fer á vinnustað og sveinspróf eru í mörgum tilvikum þreytt við raunverulegar aðstæður úti í atvinnulífinu. 

Iðnnám og sænska kennd samhliða 

Í heimsókn til Movant kynntust þátttakendur samsettu og einstaklingsmiðuðu starfsnámi sem ætlað er að auðvelda nýjum íbúum Svíþjóðar leið inn í byggingariðnaðinn. Námið er skipulagt þannig að nemendur læra sænsku samhliða verklegri kennslu í iðngrein. Námið stendur að jafnaði yfir í sex til tólf mánuði og felur í sér mun meira en verklega þjálfun eina og sér. Nemendur læra meðal annars um lög og reglugerðir, vinnuumhverfi, byggingaraðferðir og mismunandi uppbyggingu mannvirkja. 

Kennslan tekur jafnframt mið af því að byggingarhefðir og aðstæður eru ólíkar eftir landsvæðum í Svíþjóð. Sums staðar er timbur ríkjandi byggingarefni en annars staðar er meira byggt úr múrsteini. Jarðvegsaðstæður eru einnig mismunandi og þar með aðferðir við grundun mannvirkja. 

Markmiðið er að nemendur tileinki sér bæði tungumálið og þá faglegu þekkingu sem nauðsynleg er til að geta starfað í greininni og skilji þær reglur og kröfur sem gilda á sænskum vinnumarkaði. Gerð er krafa um að nemendur nái tilteknu lágmarksfærnistigi í sænsku og geti meðal annars tjáð sig og tileinkað sér þann fagorðaforða sem nauðsynlegur er í viðkomandi iðngrein. 

Námið byggist á nánu samstarfi við fyrirtæki og lögð er áhersla á að tengja nemendur snemma við atvinnulífið. Að hámarki komast 28 nemendur inn í úrræðið á ári, en starfsemin er í gangi allt árið og nemendur geta hafið nám á mismunandi tímum. Um 15 kennarar og aðrir sérfræðingar koma að verkefninu. 

Þessi nálgun er áhugaverð í ljósi þess að Malmö er um 380 þúsund manna borg og hefur, líkt og fleiri sænsk sveitarfélög, þurft að þróa nýjar leiðir til að auðvelda fólki með fjölbreyttan bakgrunn þátttöku á vinnumarkaði. 

Færniþörf næstu ára veldur áhyggjum 

Færniþörf byggingariðnaðarins næstu árin var áberandi umræðuefni á fundinum. Í Svíþjóð er fyrirséð að stór hópur reynslumikils og hæfs starfsfólks muni láta af störfum vegna aldurs á næstu árum. Á sama tíma er áskorun að nægilega margir nemendur velji sér nám sem leiðir til starfa í þeim iðngreinum þar sem þörfin verður mest. 

Fram kom á fundinum að um helmingur nemenda velji þær iðngreinar sem þörf er á og að hlutfallið þurfi að hækka verulega ef tryggja á nægt framboð fagfólks til að viðhalda innviðum og mæta uppbyggingarþörf næstu ára. Hulda segir að sambærileg áskorun blasi við hér á landi þegar komi að aðgengi að iðnnámi. Samkvæmt upplýsingum sem fram hafi komið í tengslum við fundinn séu um 30% nemaplássa hér á landi fyrir iðnnema og árlega fái um 600–1.000 umsækjendur ekki inngöngu í iðnnám. Þetta undirstriki mikilvægi þess að horfa til langs tíma þegar kemur að menntun og færniþörf. Ekki nægi að bregðast við skorti þegar hann sé orðinn að veruleika heldur þurfi atvinnulíf, menntakerfi og stjórnvöld að vinna saman að því að greina framtíðarþörf og tryggja nægjanlegt framboð námsleiða sem mæti henni. 

Fleiri konur í stjórnendahlutverk í mannvirkjagreinum 

Á fundinum var einnig kynnt starf KYH á sviði starfsmiðaðrar háskólamenntunar. Þar var meðal annars fjallað um jafnrétti kynjanna og leiðir til að fjölga konum í mannvirkja- og byggingargreinum. KYH hefur komið á fót mentoraverkefni fyrir konur í greininni þar sem áhersla er lögð á tengsl, reynslumiðlun og stuðning við starfsþróun. Verkefnið hófst árið 2024 og fram kom að árangur þess hefði verið góður og að konum í stjórnendahlutverkum við byggingarframkvæmdir hefði fjölgað á undanförnum árum. Verkefnið er enn í þróun og stefnt er að því að það nái til fleiri svæða í Svíþjóð. 

Fulltrúar Trafikverksskolan, skóla sænsku samgöngustofnunarinnar, kynntu jafnframt hvernig menntun og þjálfun er skipulögð í nánu samstarfi við atvinnulífið. Sameiginlegur þráður í kynningunum var mikilvægi þess að menntakerfið bregðist hratt við breyttum þörfum fyrirtækja og að atvinnulífið taki virkan þátt í mótun náms og þjálfunar. 

Á fundinum var einnig rætt um ólíkar útfærslur vinnustaðanáms á Norðurlöndum. Í Noregi getur slíkt nám staðið yfir í tvö til þrjú ár og verið afmarkað við tiltekna verkþætti innan byggingariðnaðarins, svo sem gluggaísetningu, grunnvinnu og uppslátt. Slíkar leiðir geta skapað tækifæri fyrir einstaklinga til að öðlast sérhæfða verklega færni og um leið mætt afmarkaðri færniþörf fyrirtækja. 

Hringrás og endurnýting í nýjum mannvirkjum 

Hluti dagskrárinnar fór fram á byggingarstöðum í Malmö. Meðal annars var heimsótt umfangsmikið uppbyggingarsvæði á vegum Malmöborgar þar sem Skanska annast framkvæmdir. Um er að ræða fjölþætta uppbyggingu íþróttamannvirkja. Annars vegar er unnið að alþjóðlegum fjölnota íþróttaleikvangi sem gert er ráð fyrir að geti hýst stórar íþróttakeppnir, meðal annars í knattspyrnu og frjálsum íþróttum, auk tónleikahalds. Hins vegar er byggt fjölnota mannvirki með innanhússknattspyrnuhöll og aðstöðu fyrir körfubolta og frjálsar íþróttir. Þar verður jafnframt skrifstofuaðstaða og framhaldsskóli fyrir afreksíþróttafólk. Einnig er gert ráð fyrir vinnuaðstöðu fyrir foreldra þannig að auðveldara sé að samræma vinnu og íþróttaiðkun barna. 

Hulda Birna segir að sjálfbærni og hringrás hráefna séu áberandi í framkvæmdunum. Lögð sé áhersla á að nýta efni úr eldri mannvirkjum á svæðinu við uppbygginguna. Steinefni úr niðurrifi gamla leikvangsins séu mulin og nýtt að nýju, meðal annars við steypuframkvæmdir, og endurnýttir múrsteinar annars staðar frá séu notaðir á ytra byrði bygginga. Þá sé hugað að hringrás vatns, meðal annars vegna vökvunar. 

Þátttakendur heimsóttu einnig framkvæmdaverkefni Otto Magnusson í Malmö og ræddu við fulltrúa byggingarfyrirtækja um þróun greinarinnar, vinnustaðanám og þær breytingar sem fram undan eru á vinnumarkaði. 

Sameiginlegar áskoranir kalla á samstarf 

Norrænu ríkin standa að mörgu leyti frammi fyrir sambærilegum áskorunum í mannvirkja- og byggingargreinum. Tryggja þarf nægt framboð af hæfu starfsfólki, styrkja iðn- og tæknimenntun og auðvelda fólki að afla sér þeirrar færni sem fyrirtækin þurfa á að halda. Mikilvægt er að fjárfesting samfélagsins í menntun skili sér í færni sem nýtist bæði einstaklingum og atvinnulífinu. Samhliða þarf að bregðast við kynslóðaskiptum þegar reynslumikið fagfólk hverfur af vinnumarkaði. 

Hulda Birna segir að reynslan frá Svíþjóð sýni hvernig hægt sé að byggja markvisst upp brýr milli einstaklinga, menntakerfis og fyrirtækja. Öflug tengsl við atvinnulífið, sveigjanlegar námsleiðir og samstarf fyrirtækja, skóla og hins opinbera skipta þar miklu máli. Fyrir Samtök iðnaðarins sé mikilvægt að fylgjast náið með slíkri þróun á Norðurlöndum og miðla reynslu milli landa. Öflugt samstarf atvinnulífs, menntakerfis og stjórnvalda, ásamt skýrri sýn á færniþörf til framtíðar, sé lykilþáttur í því að draga úr færnimisræmi, efla iðn- og tæknimenntun og tryggja íslenskum fyrirtækjum aðgang að þeirri hæfni sem þurfi til áframhaldandi uppbyggingar og verðmætasköpunar.  

Áþreifanlegur afrakstur þessa norræna samstarfs má þegar sjá hér á landi segir Hulda Birna. Öryggisskóli iðnaðarins, sem IÐAN fræðslusetur og Rafmennt hafa komið á fót, byggir meðal annars á fyrirmynd sem fulltrúar kynntust í Svíþjóð í gegnum samstarfið. Fyrsti slíki öryggisskólinn þar í landi var settur á laggirnar í nágrenni Arlanda-flugvallar við Stokkhólm og hefur sambærileg starfsemi síðan verið byggð upp víðar um Svíþjóð. Öryggisskóli iðnaðarins hóf starfsemi hér á landi í vor. Markmið hans er að stuðla að auknu öryggi í mannvirkja- og byggingariðnaði og efla öryggismenningu innan greinarinnar. Hulda Birna segir að skólinn sé þannig gott dæmi um hvernig þekking og reynsla sem verði til í norrænu samstarfi geti skilað sér í raunverulegum umbótum hér á landi. 

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, er þriðja frá hægri á myndinni.