Beint í efni

Gagna­vers­iðn­að­ur á Íslandi á fleygiferð

Rætt er við Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðing og forstöðumann stefnumótunar hjá Borealis Data Centers og stjórnarmann í SI, í Morgunblaðinu um gagnaver á Íslandi.

„Það var mjög kærkomið þegar stjórnvöld tilgreindu gagnaverin sérstaklega í atvinnustefnu sinni en við höfum verið dugleg að benda á að þessi iðnaður er á fleygiferð og við hefðum gjarnan viljað að stjórnvöld og stofnanir myndu stundum vinna hraðar. Það getur líka flækt málin að í stað þess að hafa einn ábyrgðaraðila gagnvart atvinnugreininni innan stjórnkerfisins þurfum við oft að eiga við marga, og er t.d. einn ráðherra sem ber ábyrgð á málum sem varða gervigreind, annar sem heldur utan um fjarskiptamál, þriðji sem stýrir orkumálunum og fjórði sem heldur utan um hlutabréfin í ríkisfyrirtækjunum sem eru mörg hver okkar mikilvægustu birgjar,“ segir Bergþóra Halldórsdóttir, yfirlögfræðingur og forstöðumaður stefnumótunar hjá Borealis Data Centers og stjórnarmaður í SI, meðal annars í umfjöllun Ásgeirs Ingvarssonar í Morgunblaðinu um gagnaver á Íslandi.

Bergþóra segir jafnframt að vöxtur gagnavera á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndunum sé drifinn áfram af veigamikilli breytingu í eftirspurn sem átti sér stað samhliða gervigreindarbyltingu undanfarinna ára. Áður hafi áherslan einkum verið á stuttar tengingar og nálægð við viðskiptavininn en með gervigreindinni hafi tekið að skipta minna máli að hafa tengingarnar stuttar. „Í staðinn fór aðgengi að orku að vega þyngra og kostir þess að hafa gagnaver í kaldara loftslagi fóru að hafa aukið vægi.“ Hún segir að vöxturinn ráðist m.a. af því hve mikill vilji sé til að greiða leið þessa nýja iðnaðar á Íslandi. Hún bendir á að stóru íslensku gagnaverafélögin þrjú, Borealis, atNorth og Verne, hafi öll verið stofnuð á Íslandi en síðan opnað starfsstöðvar í öðrum löndum til að dreifa áhættu betur og flýta fyrir vexti. Hér á landi hafi komið upp ákveðnar áskoranir í viðskiptaumhverfinu og einnig hafi skortur á orkuframboði orðið að flöskuhálsi sem hafi hægt á vexti.

Morgunblaðið, 6. nóvember 2026.

Morgunblaðið