Markmið verkefnisins er að auka framleiðslu matvara úr innlendu korni og finna nýjar leiðir til að hagnýta kornið. Einnig er ætlunin að auka verðmæti kornframleiðslunnar og fjölga störfum sem tengjast korni. Gerðar verða leiðbeiningar um hvernig best verði staðið að kornrækt við mismunandi skilyrði, dregnar fram upplýsingar um kornmarkaðinn og efnt til átaks í vöruþróun bökunarvara og drykkja í samvinnu við fyrirtæki.
Upplýsingamiðlun milli landa er lykilatriði í verkefninu. Fyrirtækjum í bökunar- og drykkjarvöruiðnaði stendur til boða að hagnýta margvíslegar upplýsingar auk þess sem námskeið og handleiðsla standa til boða. Þremur íslenskum fyrirtækjum í bökunariðnaði er boðið að taka þátt í námskeiðum og handleiðslu á vegum NOFIMA í Noregi ( http://nofima.no/). Í þessu felst vöruþróunarnámskeið vorið 2016 og námeið um markaðsmál vorið 2017 ásamt ráðgjöf á tímabilinu. NOFIMA býr yfir háþróuðu tilraunabakaríi og mikilli reynslu af þróun vara úr korni. Drykkjarvöruframleiðendur geta hagnýtt sér reynslu Orkneyinga í drykkjarvöruiðnaði.
Matís óskar eftir að fá upplýsingar um þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að hagnýta sér upplýsingamiðlun í verkefninu. Einnig er óskað eftir áhugasömum fyrirtækjum til að taka þátt í námskeiðunum en þau verða valin á grundvelli væntanlegs árangurs þeirra. Fyrirtæki skulu senda upplýsingar um áhuga og áform til Ólafs Reykdal hjá Matís ( olafur.reykdal@matis.is).
Hagnýting korns á norðurslóð
Hafin er vinna við nýtt alþjóðlegt verkefni um hagnýtingu korns á norðurslóð. Verkefnið er styrkt af Norðurslóðaáætluninni (Northern Periphery & Arctic Programme) og er til þriggja ára. Þátttakendur eru frá Íslandi (Matís og Landbúnaðarháskólinn), Norður-Noregi, Færeyjum, Orkneyjum og Nýfundnalandi.

Tengt efni
Gagnaversiðnaður á Íslandi á fleygiferð
Rætt er við Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðing og forstöðumann stefnumótunar hjá Borealis Data Centers og stjórnarmann í SI, í Morgunblaðinu um gagnaver á Íslandi.

Sláandi að sjá hvað margir sjá regluverkið sem hindrun í sínum rekstri
Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Viðskiptablaðinu um nýja greiningu SI um regluverk hins opinbera.

Regluverk heftir vöxt hjá sex af hverjum tíu iðnfyrirtækjum
Í nýrri greiningu SI kemur fram að um 58% stjórnenda í iðnaði segja að lög og reglugerðir hins opinbera hafi heft vöxt fyrirtækis síns á síðustu fimm árum en aðeins 5% að þau hafi stutt við vöxtinn.
