Beint í efni

Heimsókn í ný húsakynni Blikk­smiðs­ins

Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Blikksmiðurinn

Fulltrúi SI, Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, heimsótti nýverið Blikksmiðinn í nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarflöt 2. Þar hafa þrjár starfsstöðvar verið sameinaðar í eina í stóru og glæsilegu húsnæði.

Ingvar Hermannsson, einn eigenda Blikksmiðsins, tók á móti Þorgils og sýndi honum húsakynnin og starfsemina. Nóg er að gera hjá tæplega 80 starfsmönnum fyrirtækisins, sem hefur verið félagsmaður í Félagi blikksmiðjueigenda um árabil. Blikksmiðurinn sinnir alverktöku á loftræsikerfum og leggur áherslu á heildarlausnir fyrir sína viðskiptavini með tæknideild og þjónustudeild innanhúss auk blikksmiðjunnar. 

Samtök iðnaðarins óska Blikksmiðnum til hamingju með nýju húsakynnin og þakka fyrir ánægjulega heimsókn.

Blikksmiðurinn
Blikksmiðurinn
Blikksmiðurinn
Þorgils Helgason og Ingvar Hermannsson.