Beint í efni

Horft verður til framtíðar á ársfundi Samáls

Skráning stendur yfir á ársfund Samáls sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag.

Ársfundur Samáls

Skráning stendur yfir á ársfund Samáls sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag 9. maí kl. 8.30-10.00 í Kaldalóni í Hörpu. Yfirskrift fundarins er Álið er hluti af lausninni. Á fundinum verður horft til framtíðar og umhverfis- og öryggismál verða í brennidepli. Um leið verður þess minnst að hálf öld er liðin frá því álframleiðsla hófst á Íslandi. Fundarstjóri er Sólveig Bergmann. Dagskrá 8:00 - Morgunverður.
8:30 - Ársfundur. · Staða og horfur í áliðnaði - Magnús Þór Ásmundsson stjórnarformaður Samáls og forstjóri Alcoa Fjarðaáls. · Ávarp - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. · Verðmætasköpun í hálfa öld - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. · Nýsköpun í öryggismálum - Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri AMS. · Fókusinn er á umhverfið - Steinunn Dögg Steinsen framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfismála Norðuráli. · Stefnumótun út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna - Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. · Endurvinnsla áls og hringrásarhagkerfið - Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls. 10:00 - Kaffispjall að loknum fundi. Fundargestum gefst kostur á að skoða nýjan rafbíl úr frumframleiddu og endurunnu áli, Jaguar I-Pace. Þá gefst kostur á að spreyta sig á öryggisþjálfun í sýndarveruleika í boði Statnett. Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar. Aðgangur er öllum opinn. Á vef Samáls er hægt að skrá sig.

Horft verður til framtíðar á ársfundi Samáls - Samtök Iðnaðarins