Að venju verður „FJÖREGG MNÍ,“ veitt á Matvæladegi fyrir lofsvert framtak á matvæla- og/eða næringarsviði. Fjöreggið, íslenskt glerlistaverk, hannað og framleitt hjá Gleri í Bergvík, verður eins og áður veitt með stuðningi frá Samtökum iðnaðarins.
Öllum er frjálst að tilnefna vörur eða gott framtak sprotafyrirtækja, stofnana eða fyrirtækja sem sýnt hafa frumkvæði og skarað fram úr á matvæla- og/eða næringarsviði og eru þess verðug að keppa til verðlaunanna. Mikilvægt er að setja fram rökstuðning með ábendingunni.
Tilnefningar á að senda á netfangið mni@mni.is fyrir 9. september.
Fyrirtækjum og rannsóknafólki í matvæla- og næringargeiranum býðst að sýna rannsóknartengd veggspjöld á ráðstefnusvæðinu án endurgjalds. Efni veggspjaldanna þarf ekki að tengjast þema dagsins. Þeir sem vilja nýta sér þetta eru hvattir til að hafa samband við Fríðu Rún Þórðardóttur, frida@heilsutorg.is til að fá nánari upplýsingar.
Kallað eftir tilnefningum til Fjöreggs MNÍ
Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) stendur fyrir árlegum Matvæladegi 15.október næstkomandi á Hótel Sögu. Dagurinn verður að þessu sinni helgaður umfjöllun um sértæka gagnagrunna sem halda utan um næringargildi og efnainnihald matvæla.

Tengt efni
Gagnaversiðnaður á Íslandi á fleygiferð
Rætt er við Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðing og forstöðumann stefnumótunar hjá Borealis Data Centers og stjórnarmann í SI, í Morgunblaðinu um gagnaver á Íslandi.

Sláandi að sjá hvað margir sjá regluverkið sem hindrun í sínum rekstri
Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Viðskiptablaðinu um nýja greiningu SI um regluverk hins opinbera.

Regluverk heftir vöxt hjá sex af hverjum tíu iðnfyrirtækjum
Í nýrri greiningu SI kemur fram að um 58% stjórnenda í iðnaði segja að lög og reglugerðir hins opinbera hafi heft vöxt fyrirtækis síns á síðustu fimm árum en aðeins 5% að þau hafi stutt við vöxtinn.
