Mjög góð mæting var á málstofuna „Gervigreind í arkitektúr – tækifæri og áskoranir“ sem Samtök arkitektastofa, SAMARK, stóðu fyrir í Húsi atvinnulífsins 15. október síðastliðinn. Á málstofunni var fjallað um þau fjölmörgu tækifæri sem gervigreind býður upp á í arkitektúr og hönnun, auk þeirra áskorana sem fylgja innleiðingu tækninnar í starfsemi arkitektastofa.
Hjörtur Sigurðsson frá Mynstra fjallaði um þróun gervigreindar og hvernig nýta megi tæknina í skapandi greinum.
STRUX-teymið kynnti STRUX, lausn sem yfirfer umsóknargögn vegna byggingarleyfa áður en þau eru send til byggingarfulltrúa. Lausninni er ætlað að greina mögulega annmarka á gögnum sem gætu tafið afgreiðslu umsókna.
Einar Hlér Einarsson frá Sei Studio kynnti Húsatal.is, gagnvirkt kort sem varpar ljósi á byggingarsögu Íslands frá landnámi til dagsins í dag. Kortið byggir á fyrirliggjandi heimildum og sýnir jafnframt hvar upplýsingar um byggingarsöguna skortir.
Málstofan endurspeglar þann mikla áhuga sem er meðal arkitekta á nýtingu gervigreindar og hvernig tæknin getur haft áhrif á þróun og starfshætti greinarinnar á komandi árum.
SAMARK þakka fyrirlesurum fyrir áhugaverð og fróðleg erindi og öllum þátttakendum fyrir komuna.




