Beint í efni

Ný stjórn Meist­ara­fé­lags húsasmiða

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Meistarafélags húsasmiða sem fór fram í Húsi atvinnulífsins.

Ný stjórn Meistarafélags húsasmiða

Ný stjórn var kosin á aðalfundi Meistarafélags húsasmiða, MFH, sem fór fram í Húsi atvinnulífsins 6. maí síðastliðinn. Góð mæting var á fundinn en um 30 félagsmenn skráðu sig til leiks. Aðalfundarstörf fóru fram með hefðbundnum hætti.

Stjórn félagsins tók þeim breytingum að Hilmar Páll Marinósson kom inn í aðalstjórn úr varastjórn og Birkir Örn Arnarson kom í hans stað í varastjórn félagsins. Í nýrri stjórn eru eftirtaldir: Jón Sigurðsson, formaður, Bergur Ingi Arnarsson, varaformaður, Pétur Þórarinsson, gjaldkeri, Hjörleifur Einar Árnason, ritari, Hilmar Páll Marinósson, meðstjórnandi. Varamenn eru Reynir Gylfason, Daníel Steinarr Jökulsson og Birkir Örn Arnarson.


Ný stjórn Meistarafélags húsasmiða - Samtök Iðnaðarins