Beint í efni

Ráðherra setur fyrsta skólaárið í tölvu­leikja­gerð á Ásbrú

Fyrsta skólaárið í námi með áherslu á tölvuleikjagerð í Ásbrú hófst í dag.

Ráðherra setur fyrsta skólaárið í tölvuleikjagerð á Ásbrú

Skólasetning Menntaskólans á Ásbrú, sem býður einn íslenskra framhaldsskóla upp á nám til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð, fór fram í dag. Alls sóttu um eitt hundrað nemendur um skólavist á haustönn 2019 en af þeim hefja 45 nemendur nám við skólann núna í ágúst.

Það var mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, sem setti formlega fyrsta skólaárið í dag en fulltrúar Samtaka leikjaframleiðenda og viðskiptastjóri á hugverkasviði Samtaka iðnaðarins voru viðstödd. Nám í tölvuleikjagerð hefur verið eitt helsta baráttumál Samtaka leikjaframleiðenda og verið í burðarliðnum í nokkur ár. Samtökin munu veita faglega ráðgjöf við framkvæmd námsins.

Edda Björk Ragnarsdóttir, viðskiptastjóri á hugverkasviði SI, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Haukur Steinn Logason, í stjórn Samtaka leikjaframleiðenda, og Vignir Guðmundsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, við skólasetninguna í Ásbrú í dag.

Asbru1
Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, og Nanna Kristjana Traustadóttir, skólameistari Menntaskólans á Ásbrú.