Samtök atvinnulífsins, aðildarsamtök og Viðskiptaráð Íslands hafa boðað til tveggja fjarfunda sem hefjast í dag 6. maí kl. 10 og 11. Fjarfundirnir eru ætlaðir aðildarfélögum.
Það er Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem verður gestur fundar kl. 10 og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, verður gestur kl. 11.
Félagsmenn hafa fengið boð í tölvupósti með hlekkjum á fundina.
Á báðum fundum gefst félagsmönnum færi á að beina spurningum sem þeir kunna að hafa beint til ráðherranna í gegnum fjarfundarforrit.
Ráðherrar á fjarfundum ætluðum aðildarfélögum
Tveir fjarfundir verða í dag með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Tengt efni
Ríkið á að ýta undir verðmætasköpun í atvinnulífinu en ekki veikja
Rætt er við Erlu Tinnu Stefánsdóttur, viðskiptastjóra tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, í frétt RÚV um útboð Stafrænnar heilsu.

Skellur í byggingariðnaði gæti orðið enn meiri á næstu mánuðum
Páll Magnússon ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, á Sprengisandi á Bylgjunni um stöðuna í byggingariðnaði.

Tveir nýsveinar í ljósmyndun fá afhent sveinsbréf
