Beint í efni

Samtök rafverktaka gefa út nýjar leið­bein­ingar um út­tekt­ar­mæl­ingar

Samtök rafverktaka, SART, sem eru aðildarsamtök SI hafa látið útbúa nýjar skýringarteikningar og leiðbeiningar um úttektarmælingar löggiltra rafverktaka. Markmiðið er að styðja við fagleg og samræmd vinnubrögð við mælingar og auðvelda rafverktökum að sinna úttektum með skýrum og aðgengilegum leiðbeiningum.

Leiðbeiningarnar voru unnar í góðu samstarfi við sérfræðinga Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS.

Birgjar leggja verkefninu lið

SART bauð helstu birgjum rafverktaka að tengjast verkefninu með því að útbúa skýringarmyndir og texta um notkun þeirra mælitækja sem þeir bjóða.

Ískraft og Reykjafell tóku þátt í verkefninu og lögðu til upplýsingar um Fluke- og Kyoritsu-mæla. Þannig geta rafverktakar nú nálgast hagnýtar upplýsingar sem tengja leiðbeiningar um úttektarmælingar við notkun tiltekinna mælitækja.

Leiðbeiningar um mælana eru aðgengilegar hjá Ískrafti og Reykjafelli og skýringarteikningar SART eru aðgengilegar félagsmönnum á innri vef samtakanna.

Stuðla að gæðum og öryggi

Með útgáfu leiðbeininganna er leitast við að efla þekkingu og styðja við fagleg vinnubrögð löggiltra rafverktaka. Verkefnið endurspeglar jafnframt mikilvægi samstarfs fyrirtækja, fagfélaga og stjórnvalda þegar kemur að því að efla gæði og öryggi í mannvirkjagerð.

Þorvaldur Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Reykjafelli, og Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART.
Brynjar Stefánsson, framkvæmdastjóri Ískraft, og Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART.