Opið samtal um stöðu og framtíð íslenskunnar fór fram í Iðnó fimmtudaginn 19. nóvember þar sem margt var um manninn. Að viðburðinum stóðu menntatæknifyrirtækið Bara tala og útgerðarfélagið Brim í samstarfi við Gefum íslensku séns og Samtök iðnaðarins. Í brennidepli var spurningin: Hvernig sköpum við samfélag þar sem fólk með annað móðurmál fær raunveruleg tækifæri til að læra íslensku og nota hana í daglegu lífi?
Dagskráin hófst á því að Klara Einarsdóttir og Þorlákskórinn sungu lagið Vegbúinn eftir KK en kórinn er að mestu skipaður fólki sem hefur flust til Íslands og lært íslensku. Þá tók við samtal Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Pálma Hafþórs Ingólfssonar, fræðslustjóra Brims, um stöðu og framtíð íslenskunnar. Valerio Gargiulo, rithöfundur og þýðandi, flutti erindi byggt á grein sinni „Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku?“. Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins, fjallaði um íslenskukennslu á karllægum vinnustað. Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, stýrði pallborðsumræðum. Þar sátu Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Peter Weiss, stjórnarformaður Gefum íslensku séns, og Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. En þess má geta að Lilja Dögg hljóp í skarðið fyrir Loga Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem forfallaðist með stuttum fyrirvara.
Í umræðunum kom skýrt fram að fyrirtæki hafa svo sannarlega tekið ábyrgð á íslenskukennslu starfsfólks síns. Guðmundur Kristjánsson benti á að fyrirtækin hefðu axlað sína ábyrgð og að nú þyrftu stjórnvöld einnig að gera það. Ásta Sigríður Fjeldsted sagði frá því að hjá Festi starfi fólk af yfir 60 þjóðernum. Lausnir á borð við Bara tala skipti því miklu máli fyrir fyrirtækið, bæði fyrir inngildingu á vinnustaðnum og til þess að starfsfólkið upplifi að það tilheyri. Peter Weiss lagði áherslu á að Íslendingar sjálfir yrðu að tala meira íslensku og tala íslensku við nýja Íslendinga, svo við getum öll tilheyrt samfélaginu. Lilja Dögg sagði frá áskorun Almannaróms og Íslandsstofu til Apple og minnti á mikilvægi þess að máltækni sé aðgengileg á íslensku.
Í umræðunum kom fram að í dag læri starfsmenn um 200 fyrirtækja og 20 sveitarfélaga íslensku með Bara tala og að Brim hafi um árabil boðið starfsfólki sem ekki hefur íslensku að móðurmáli upp á íslenskukennslu. Einnig var rætt hvort ekki þyrfti að styðja betur við fjölskyldur sem flytja til landsins og tryggja foreldrum, ekki aðeins börnunum, aðgengilegar leiðir til að læra íslensku. Það styrki jafnframt íslenskuna í grunnskólunum, því foreldrar sem ná tökum á málinu eigi auðveldara með að styðja börnin í náminu og taka virkan þátt í skólastarfinu. Tungumálið sé lykillinn að samfélaginu. Í umræðunum kom fram að samhljómur væri um að verkefnið væri samspil atvinnulífs, sveitarfélaga, skóla, stjórnvalda og samfélagsins í heild.
Dagskránni lauk þegar Jökull Júlíusson úr Kaleo tók lagið ásamt Doctor Victori.
Myndir/Silla Páls.












