Beint í efni

Við getum ákveðið að íslensk mat­væla­fram­leiðsla eigi sér sterka framtíð

SAFL

Við þurfum að geta framleitt og útvegað mat þegar aðstæður versna eða áföll dynja yfir, ekki aðeins þegar allt gengur að óskum. Ákvarðanir og stefnumótun þarf að taka mið af því. Við getum ekki stýrt ákvörðunum eða þróun úti í hinum stóra heimi en við getum ákveðið að íslensk matvælaframleiðsla eigi sér sterka framtíð. Íslenskur landbúnaður hefur þekkingu, fólk og hráefni til að skapa meiri verðmæti. Okkar verkefni er að gefa þeim krafti svigrúm, þar höfum við sjálf áhrif og þar getum við byrjað. Þetta sagði Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, í niðurlagi ávarps síns sem fjallaði um matvælamarkaði á umbrotatímum á málþingi Samtaka fyrirtækja í landbúnaði og Bændasamtaka Íslands sem fram fór í Sjálfstæðissalnum í gær.

Óvissa og áföll snerta íslenska matvælaframleiðslu

Margrét sagði að á þeim einungis sex árum sem liðin eru af þessum áratug hafi stór áföll dunið hvað eftir annað á viðskiptaumhverfi heimsins, heimsfaraldur, stríð í Evrópu, árásir á siglingaleiðir, tolladeilur stórvelda. Hún sagði að óvissa í alþjóðamálum hafi verið mikil í sögulegu samhengi og að þessi áföll hafi snert íslenska matvælaframleiðslu beint. Áhrifa hafi gætt í aðfangakostnaði bænda, rekstri matvælafyrirtækja og þar af leiðandi framtíðarákvörðunum um framleiðsluna. Margrét sagði að við stýrðum ekki þessum atburðum en að við hefðum vald á ýmsum öðrum þáttum og varpaði fram þeirri spurningu hvernig matvælaframleiðslu við viljum eiga hér eftir tíu ár og hvað þurfi að gera núna til að sú sýn raungerist.

Bætum ekki við óþarfa byrðum

Í erindi sínu nefndi Margrét að skapa þyrfti skilyrði fyrir matvælaframleiðslu ef við viljum meiri framleiðslu hér í stað þess að hún færist úr landi. Hún sagði að á sama tíma hafi regluálag orðið stórt átakamál í evrópskum landbúnaði. Sífellt fleiri kröfur tengdar umhverfis- og heilbrigðismálum, ásamt eftirliti og skráningarskyldum, leggist á bændur og fyrirtæki. Hún sagði að víðtæk mótmæli bænda um Evrópu hafi endurspeglað óánægju með þessar auknu byrðar sem felist í flóknu regluverki og íþyngjandi kröfum, og áhrif þeirra á afkomu greinarinnar og samkeppnisstöðu. „Við finnum líka fyrir þessari þróun hér. Við tökum upp sífellt fleiri reglur á þessum sviðum og þurfum að horfa á samanlögð áhrif þeirra á íslenska framleiðslu. Hver ný krafa eða reglugerð kann að virðast viðráðanleg ein og sér, en saman taka þær tíma og fjármuni sem annars gætu farið í fjárfestingar, nýsköpun og uppbyggingu. Og það merkilegasta af öllu er að þú finnur vart stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfalda þurfi kerfið.“ Hún sagði umræðu um einföldun breyti litlu fyrir framleiðendur nema hún skili raunverulega færri skyldum, minni kostnaði og einfaldari framkvæmd. Árangurinn þurfi að mælast í daglegum rekstri bænda og fyrirtækja. „Ábyrg framleiðsla þarf skýrar kröfur. En það gildir það sama um matvælaframleiðslu og annað atvinnulíf, hún þarf að geta andað, hófleg gjöld, einfalt regluverk og svigrúm til að fjárfesta og þróast. Og þegar ytri áföll og atburðir auka álagið skiptir enn meira máli að við bætum ekki við óþarfa byrðum hér heima.“

Mynd: Ástvaldur Lárusson/Bændablaðið

Upptaka frá málþinginu

Á málþinginu sem bar yfirskriftina Landbúnaður í heimi breytinga — öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri voru flutt fjölmörg erindi auk þess sem efnt var til umræðna. Hér er hægt að nálgasta upptöku af málþinginu, erindi Margrétar hefst á mín 1:06:18.