Beint í efni

Þjónusta

Aðild að SI borgar sig. Fyrirtæki geta ýmist verið beinir aðilar að Samtökum iðnaðarins eða aðilar í gegnum starfsgreinahópa og aðildarfélög samtakanna. Undir hatti SI starfa hátt í 40 starfsgreinahópar og aðildarfélög.

Þjónusta

Ávinningur af aðild

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu samtök atvinnurekenda á Íslandi og mynduð af um 1.700 fyrirtækjum og sjálfstæðum atvinnurekendum sem stunda margvíslega atvinnustarfsemi.

Hér er hægt að sækja um aðild að Samtökum iðnaðarins rafrænt.

Fyrirspurnir um aðildarumsókn er hægt að senda á mottaka@si.is.

Ávinningur af aðild að SI er af ýmsum toga en með aðild að samtökunum er meðal annars hægt að:

  • tekið þátt í málefnavinnu, umræðu og umbótastarfi samtakanna.
  • sótt fundi, fræðslu og Iðnþing SI, sem haldið er árlega.
  • nýtt öflugt tengslanet við hagaðila á Íslandi og erlendis.
  • fengið aðgang að útgáfum, skýrslum, greiningum, fréttabréfi og öðrum gagnlegum upplýsingum.
  • leitað til sérfræðinga SI og nýtt gæðakerfi, vottanir og gæðahandbækur samtakanna.
  • fengið aðgang að fundarsölum í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.
  • orðið aðili að Ábyrgðarsjóði Meistaradeildar SI og átakinu Íslenskt – gjörið svo vel.

Þinn tengiliður

Hvert aðildarfyrirtæki SI hefur sinn tengilið sem hefur umsjón með einstökum fyrirtækjum og starfsgreinahópum. Hlutverk tengiliðar er meðal annars eftirfarandi:

  • Vinna að framgangi áherslumála einstakra starfsgreinahópa.
  • Gera umsagnir um lagafrumvörp og sinna hagsmunagæslu gagnvart Alþingi, stjórnvöldum, sveitarfélögum og opinberum eftirlitsaðilum.
  • Annast samskipti við opinbera verkkaupa og taka þátt í mótun verklagsreglna.
  • Sjá um fundarboð, fundargerðir, bréfaskriftir og aðra umsýslu starfsgreinahópa.
  • Uppfæra heimasíður einstakra aðildarfélaga þegar við á.
  • Hafa umsjón með samstarfi og tengslum við erlend systurfélög.

Þínar síður

Öll aðildarfyrirtæki SI fá aðgang að Mínum síðum í gegnum vef SI þar sem hægt er að nálgast upplýsingar sem tengjast aðild að samtökunum. Þar er jafnframt farvegur fyrir fyrirspurnir og verkbeiðnir.

Aðild að SA

Með aðild að SI verða fyrirtæki einnig aðilar að Samtökum atvinnulífsins, SA, sem annast samskipti við stéttarfélög og gera kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja sem falið hafa samtökunum umboð til þess. Jafnframt leiðbeina SA aðildarfyrirtækjum um framkvæmd kjarasamninga og önnur vinnumarkaðsmál. Aðildarfyrirtæki SA hafa aðgang að:

• Þjónustu í vinnumarkaðs- og kjaramálum, m.a. aðstoð varðandi túlkun kjarasamninga, launagreiðslur, veikindarétt, orlof, vinnutíma og starfsmenntamál.

• Vinnumarkaðsvef SA sem inniheldur gagnlegar upplýsingar um vinnumarkaðs- og starfsmannamál.

Félagsgjöld SI og SA

Félagsgjald Samtaka iðnaðarins
Félagsgjald til Samtaka iðnaðarins er 0,081% af veltu síðastliðins árs.

Gjalddagar félagsgjalda eru í janúar, mars, maí, júlí, september, nóvember ár hvert og eindagi mánuði síðar. Lágmarksgjald er kr. 36.000 (ekki er veittur afsláttur af lágmarksgjaldi) sem jafnframt er einyrkjagjaldið. 

Veltutengdur afsláttur er af félagsgjöldum þeirra fyrirtækja og fyrirtækjasamsteypa þar sem álögð félagsgjöld til Samtaka iðnaðarins eru hærri en kr. 1.000.000. Hér er átt við félagsgjöld útreiknuð skv. lögum SI. Álögð félagsgjöld umfram kr. 1.000.000 veita rétt á 5% viðbótarafslætti, umfram kr. 2.000.000 veita rétt á 10% afslætti og álögð gjöld umfram kr. 3.000.000 veita rétt á 15% afslætti.

Með fyrirtækjasamstæðum er átt við móðurfyrirtæki og dótturfyrirtæki þar sem eignarhlutur er 50% eða meiri, þannig að skylt er að gera samstæðureikning. Þessi sérstaki afsláttur til stærstu greiðenda félagsgjalda til Samtaka iðnaðarins verður reiknaður á síðasta greiðsluseðli ársins þegar endanleg álagning félagsgjalda liggur fyrir.


Árgjald Samtaka atvinnulífsins
Árgjald til Samtaka atvinnulífsins er 0,19% af launagreiðslum síðastliðins árs, þ.e. launakostnaður án launatengdra gjalda. Sé launakostnaður hærra hlutfall en 35,294% af veltu reiknast gjaldið af veltu í stað launa og er þá 0,067%. Gjaldið skiptist þannig að 0,17% renna til rekstrar en 0,02% í Vinnudeilusjóð. 

Þeir sem velja að vera innan þjónustudeildar SA framselja ekki samningsumboð sitt og greiða þar af leiðandi ekki til Vinnudeilusjóðs og gjaldið hjá þeim er 0,17% af launum eða 0,06% af veltu.

Lágmarksgjald er kr. 41.000 (ekki er veittur afsláttur af lágmarksgjaldi). Stigvaxandi afsláttur er af álögðum árgjöldum, að iðgjaldi í vinnudeilusjóð meðtöldu, umfram tvær og hálfa milljón krónur samkvæmt eftirfarandi reglu:

Álögð félagsgjöld og afsláttur

0 - 3.000.000 krónur 0% afsláttur

3.000.000 - 6.000.000 krónur 5% afsláttur

6.000.000 - 9.000.000 krónur 10% afsláttur

9.000.000 krónur og yfir 15% afsláttur

Afslátturinn reiknast af álögðum árgjöldum í hverju fjárhæðabili. Séu álögð árgjöld t.d. 7 milljónir króna þá reiknast enginn afsláttur af fyrstu 3,0 milljónum krónum, 5% eða 150 þús. kr. afsláttur reiknast af bilinu 3,0-6,0 m.kr. og 10% eða 100.000 kr. afsláttur reiknast af þeirri 1 m.kr. sem er á bilinu 6-7 m. kr. Afslátturinn verður því 250.000 kr. samkvæmt reglunni í þessu tilviki. Móðurfélag og dótturfélög þess geta óskað þess að afsláttur verðir reiknaður miðað við samanlögð árgjöld allra fyrirtækjanna.


Reikningar
Reikningar eru sendir út sex sinnum á ári. Heimilt er að innheimta félagsgjöld SI og SA samkvæmt áætlun. Gjöld skulu endanlega útreiknuð við innheimtu síðasta reiknings ársins og verða þá einnig leiðrétt félagsgjöld sem hafa verið of- eða vanreiknuð á fyrri gjalddögum ársins.

Fé­lags­gjalda­reikni­vél

Forsendur

Niðurstöður

Félagsgjald SI0 kr.
Veltutengdur afsláttur SI0 kr.
Samtals félagsgjald til SI36.000 kr.
Félagsgjald SA0 kr.
Veltutengdur afsláttur SA0 kr.
Samtals félagsgjald til SA0 kr.
Samtals félagsgjald til SI og SA36.000 kr.

Gæðastjórnun

Hér er hægt að nálgast gæðastjórnunarkerfið GSI:

Innskráning - GSI