Fréttasafn



27. apr. 2018 Almennar fréttir

76% félagsmanna SI segja skort á iðnmenntuðu starfsfólki

Hátt hlutfall félagsmanna SI eða 76% segja að það skorti iðnmenntað starfsfólk, um 13,5% telja að það skorti ófaglært starfsfólk og 8,5% segja að það skorti háskólamenntað starfsfólk. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem fyrirtækið Outcome gerði fyrir Samtök iðnaðarins og sagt er frá í nýjasta tölublaði  Viðskiptablaðsins. 

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem segir niðurstöðurnar mjög afgerandi. „Þótt mennta- og mannauðsmál skipti okkar félagsmenn mjög miklu máli þá kom það mér svolítið á óvart hversu afdráttarlaus niðurstaðan var. Ástandið eins og það er, hvað iðnmenntað starfsfólk varðar, er óboðlegt. Hér á landi fara um 12% ungs fólks, sem lokið hefur grunnskóla, í iðn- og verknám. Sambærilegt hlutfall á Norðurlöndunum er á milli 20 og 30%. Það er ekkert að náminu sjálfu hér heima þó eflaust megi alltaf bæta það. Ég held að þetta snúist fyrst og fremst um vitundarvakningu. Það þarf að upplýsa ungt fólk um tækifærin sem felast í iðn- og verknámi og möguleikana sem opnast að námi loknu. Þessi menntun er til dæmis alþjóðleg. Þeir sem lokið hafa iðnnámi geta nýtt sína þekkingu erlendis, sem er ekki raunin með allar námsgreinar. Auk þessa byrja þeir sem ljúka iðnnámi að afla tekna töluvert fyrr á lífsleiðinni en þeir sem fara í háskóla.“ 


Skortur-a-starfsfolki-2018
Viðskiptablaðið, 26. apríl 2018.