Fréttasafn



29. sep. 2021 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Starfsumhverfi

Áfram of lítið byggt af íbúðum miðað við þörf

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í ViðskiptaMogganum að ný íbúðatalning SI sýni að of lítið sé byggt miðað við þörfina á markaðnum en samkvæmt talningunni heldur íbúðum í byggingu áfram að fækka á höfuðborgarsvæðinu og hefur nú fækkað samfellt frá því í mars 2019. Nú eru 3.387 íbúðir í byggingu samkvæmt talningunni. Ekki hafa færri íbúðir verið í byggingu á höfuðborgarsvæðinu í á fimmta ár eða síðan í mars 2017. Sé horft til talningar SI á síðasta ári leiðir niðurstaðan nú í ljós 18% samdrátt milli ára. „Það skiptir gríðarlegu máli að taka á vandamálinu núna. Þessi skortur birtist í verðhækkunum og aukinni verðbólgu og þar af leiðandi hærri stýrivöxtum Seðlabanka Íslands sem snertir heimili landsins og fyrirtæki.“ 

Skipulagsmál fari úr umhverfisráðuneyti yfir í nýtt innviðaráðuneyti

Þá segir Sigurður í ViðskiptaMogganum að ástandið kalli á skýra ábyrgð og yfirsýn innan stjórnarráðsins með innviðaráðuneyti með frekari skipulagsbreytingum innan málaflokksins, færa þurfi málaflokka yfir til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis sem verði hið nýja innviðaráðuneyti. Hann segir að skipulagsmál þurfi að fara úr umhverfisráðuneyti yfir til hins nýja ráðuneytis að öðrum kosti verði ekki neitt úr neinu og uppbygging verði áfram óskilvirk með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið. „Það er algjört grundvallaratriði að gera þessar breytingar ef við sem samfélag viljum stöðugri húsnæðismarkað. Það þarf nauðsynlega að einfalda umhverfi bygginga- og mannvirkjagerðar.“ 

Þyngra en tárum taki að stýrivextir hafi þurft að hækka vegna skipulagsmála í Reykjavík

Jafnframt segir Sigurður í ViðskiptaMogganum að sveitarfélögin þurfi að koma hressilega að málum, enda fari þau með skipulagsvald og leyfisveitingar. Um stýrivaxtahækkanir Seðlabankans segir Sigurður það þyngra en tárum taki að bankinn hafi þurft að hækka stýrivexti vegna skipulagsmála í Reykjavík og vísar þar til orða seðlabankastjóra í sumar um að sú ákvörðun að brjóta ekki nýtt land undir byggð í Reykjavík hefði mikil langtímaáhrif.

Morgunblaðið, 29. september 2021.

VidskiptaMogginn-29-09-2021