Arkitektinn Stefan Marbach í Norræna húsinu
Arkitektinn Stefan Marbach, einn aðaleiganda svissnesku arkitektastofunnar Herzog & de Meuron, flytur fyrirlestur og veitir innsýn í valin verkefni á fundi í Norræna húsinu næstkomandi þriðjudag 24. apríl kl. 17.00. Það er Listaháskóli Íslands sem stendur fyrir fyrirlestrinum í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, Hönnunarmiðstöð og SAMARK. Yfirskrift fundarins er Project Insights.
Stofnendur stofunnar, Jacques Herzog og Pierre de Meuron, hlutu hin virtu Pritzker verðlaun árið 2001 en Stefan Marbach hefur starfað með þeim í rúman aldarfjórðung og verið einn aðaleigandi stofunnar frá árinu 2009. Hann stýrir stórum og fjölbreyttum verkefnum í Sviss, Bretlandi, Frakklandi, Svíþjóð, Rússlandi, Japan og Kína. Meðal þekktra verkefna sem hann hefur leitt er Ólympíuleikvangurinn í Peking í Kína (2008) og Nýi íþróttaleikvangurinn í Bordeaux í Frakklandi (2015).
Stefan Marbach er hér á landi til þess að dæma lokaverkefni BA nemenda í arkitektúr við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hér er hægt að lesa nánar um Herzog & de Meuron.
Ljósmynd: Adriano A. Biondo / biondopictures