Fréttasafn



30. apr. 2020 Almennar fréttir

Árni Sigurjónsson nýr formaður SI

Í framboði til formanns Samtaka iðnaðarins voru Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður Límtré Vírnets og Securitas. Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga og var Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, kjörinn nýr formaður með 71,50% greiddra atkvæða. Árni verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2022.

Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fimm sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

  • Arna Arnardóttir, gullsmiður
  • Egill Jónsson, Össur
  • Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, CRI
  • Valgerður Hrund Skúladóttir, Sensa
  • Vignir Steinþór Halldórsson, MótX

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

  • Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari
  • Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál
  • Magnús Hilmar Helgason, Launafl
  • Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV 


Fréttablaðið, 30. apríl 2020.

mbl.is , 30. apríl 2020.

Vísir, 30. apríl 2020.

Viðskiptablaðið, 30. apríl 2020.

Viljinn, 30. apríl 2020.

RÚV, 30. apríl 2020.

Kjarninn, 30. apríl 2020.

Eyjan, 30. apríl 2020.