Fréttasafn



10. jún. 2020 Almennar fréttir

Auglýst eftir tilboðum í sameiginlega kynningarherferð

Ríkiskaup fyrir hönd atvinnuvega‐ og nýsköpunarráðuneytisins hefur óskað eftir tilboðum í heildstæða kynningarherferð um að verja störf og auka verðmætasköpun í íslensku samfélagi og stýra birtingu hennar í fjölmiðlum. Skilafrestur er til föstudagsins 26. júní næstkomandi og er fjárheimild til átaksins 90 milljónir kr. með virðisaukaskatti. 

Í auglýsingunni fyrir útboðið kemur fram að með kynningarátakinu skuli leggja áherslu á mikilvægi hringrásarinnar og keðjuverkandi áhrifanna sem verða til þegar fólk velur að skipta við innlend fyrirtæki sem stuðlar að því að atvinnustarfsemi helst gangandi, störf almennings eru varin, efnahagslegur stöðugleiki eykst og verðmætasköpun er aukin.

Frekari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.

Að þessari sameiginlegu kynningarherferð standa ferðamála-, iðnaðar‐ og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs‐ og landbúnaðarráðherra, f.h. ríkissjóðs, Samtök atvinnulífsins (SA), Samtök iðnaðarins (SI), Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ), Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Samorka og Bændasamtök Íslands.