Bein útsending frá fundi um mannvirkjalög
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundi Mannvirkjaráðs Samtaka iðnaðarins um nýsamþykktar breytingar á lögum um mannvirki nr. 160/2010. Fundurinn fer fram í Kviku á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins.
Beina útsendingin er á Facebook SI.
Fundarstjóri er Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur SI.
Dagskrá
- Opnunarerindi – Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI
- Nýsamþykktar breytingar á lögum um mannvirki og möguleg áhrif á fyrirtæki – Ásta Sóley Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá Mannvirkjastofnun, og Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar
- Umræður og fyrirspurnir