Beint í efni

Mikilvægt að stjórnvöld falli frá fyr­ir­hug­aðri skatta­hækk­un á íbúða­upp­bygg­ingu

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um stöðuna í byggingariðnaði.

Ingólfur Bender

„Það eru klárlega skýr merki um samdrátt í byggingariðnaði og mannvirkjagerðinni í heild,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem hann lýsir þungri stöðu fyrirtækja í greininni og vaxandi áhyggjum af þróuninni á næstu mánuðum.

Ingólfur segir að samdrátturinn birtist meðal annars í fækkun starfandi, auknu atvinnuleysi, uppsögnum, minnkandi veltu og samdrætti í sölu byggingarefna. Fyrirtæki í greininni hafi þurft að takast á við miklar kostnaðar-, skatta- og gjaldahækkanir á sama tíma og eftirspurn hafi dregist saman, einkum á íbúðamarkaði þar sem sala hafi hægt verulega á sér og óseldum nýjum íbúðum fjölgað.

Hann bendir á að fjárhagsstaða margra byggingarfyrirtækja sé orðin erfið. Vanskil í greininni hafi aukist og hátt vaxtastig ásamt hægari sölu gengið hratt á eigið fé fyrirtækjanna. Þá hafi atvinnulausum í greininni fjölgað um rúmlega 30% milli ára og væru þeir nú um 1.100 talsins.

Ingólfur gagnrýnir jafnframt áform stjórnvalda um að lækka enn frekar endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði úr 35% í 20%. Slík breyting segir hann auka kostnað við byggingu 100 fermetra íbúðar um 1,1–1,3 milljónir króna og gera erfiða stöðu greinarinnar enn verri.

Að mati Ingólfs eru horfur á að staðan geti versnað enn frekar á næstu sex til tólf mánuðum nema breytingar verði á efnahagslegum aðstæðum. Hann leggur áherslu á að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum skattahækkunum og að gripið verði til aðgerða til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Hann segir jafnframt mikilvægt að ríkisfjármál og fjármál sveitarfélaga styðji betur við hjöðnun verðbólgu þannig að draga megi úr þrýstingi á vaxtastigið og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og innviða.

Á vef Vísis er hægt að hlusta á viðtalið við Ingólf í heild sinni.