Beint í efni

Sláandi að sjá hvað margir sjá regluverkið sem hindrun í sínum rekstri

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Viðskiptablaðinu um nýja greiningu SI um regluverk hins opinbera.

„Það er frekar sláandi að sjá hvað margir sjá regluverkið sem hindrun í sínum rekstri,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í samtali við Viðskiptablaðið um nýja greiningu SI sem byggir á niðurstöðum könnunar Maskína meðal 880 stjórnenda fyrirtækja og stofnana. Hann segir einna athyglisverðast við niðurstöðurnar hve stór hluti stjórnenda telji framkvæmd laga og reglugerða vera íþyngjandi, en ekki einungis lögin sjálf. Því sé ekki nóg að einfalda löggjöfina heldur þurfi einnig að horfa til þess hvernig stjórnsýslan framfylgi henni.

Sigurður bendir á að þegar rætt sé um einföldun regluverks beinist athyglin gjarnan að lögunum og reglugerðunum sjálfum. Niðurstöður könnunarinnar sýni hins vegar að stjórnsýsluframkvæmdin geti verið ekki síður íþyngjandi fyrir fyrirtæki. Þannig séu dæmi um að túlkun reglna sé óskýr eða að stofnanir breyti framkvæmd þeirra, sem geti skapað óvissu um það hvaða kröfur fyrirtæki þurfi að uppfylla. „Við sjáum náttúrulega alls konar dæmi um það hvernig framkvæmd regluverksins hjá stofnunum er ófyrirsjáanleg,“ segir hann og bendir á að slík óvissa geti bæði tafið framkvæmdir og aukið rekstrarkostnað, í einhverjum tilvikum hafi fyrirtæki þurft að leita til dómstóla til að fá úr því skorið hvaða túlkun laga og reglugerða sé rétt og að slíkt geti verið bæði tímafrekt og kostnaðarsamt.

Þá kemur fram að Sigurður fagni því að ríkisstjórnin hafi sett einföldun regluverks á dagskrá og segir að nú sjáist merki þess að ráðast eigi í umfangsmeiri breytingar en áður. „Það er full ástæða til þess að hrósa ríkisstjórninni fyrir að setja það mál rækilega á dagskrá núna í vetur,“ segir hann og vísar meðal annars til vinnu við einföldun regluverks, fyrirhugaðrar lagasetningar og sameiningar stofnana.

Í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að Samtök iðnaðarins standi fyrir opnum fundi í Hörpu fimmtudaginn 12. nóvember þar sem fjallað verður um tækifæri til einföldunar regluverks og stjórnsýslu. Sigurður segir að meðal annars verði rætt um hvernig auka megi fyrirsjáanleika í stjórnsýslunni, draga úr flækjustigi og bæta framkvæmd laga og reglugerða. Á fundinum verði kynnt sjónarmið félagsmanna SI sem komu fram á vinnufundum samtakanna í Reykjavík og á Akureyri í september þar sem komið höfuð saman á annað hundrað manns til að ræða hindranir í rekstri og mögulegar úrbætur.

Á vef Viðskiptablaðsins er hægt að nálgast umfjöllunina í heild sinni.

Viðskiptablaðið, 6. nóvember 2026.