Fréttasafn



9. okt. 2019 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Brim og Krónan fá umhverfisverðlaun

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins í dag. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Umhverfisfyrirtæki ársins er Brim en framtak ársins á sviði umhverfismála á Krónan.

Brim hefur tekið umhverfismálin föstum tökum. Fyrirtækið leggur áherslu á samfélagsábyrgð og virðingu fyrir umhverfinu og hefur unnið að því að kortleggja áhrif og ábyrgð félagsins. Þá hefur Brim sett sér markmið og mælikvarða til að mæla árangur, draga úr sóun og auka verðmæti. Brim hefur dregið markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, fjárfest í nýrri tækni og skipum sem hefur skilað miklu.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, tók við verðlaununum í Hörpu í dag. „Við í Brimi erum þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Hún gerir okkur ánægð og stolt. Virðing fyrir náttúru hefur verið okkar leiðarljós og við sjáum að áhersla á umhverfismál og sjálfbærni skilar sér í aukinni arðsemi og miklum ábata fyrir samfélagið í heild. Við í Brimi ætlum að halda áfram á sömu braut. Umhverfisverðlaunin eru hvatning til að gera enn betur.“

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Torfi Torfi Þ. Þorsteinsson, forstöðumaður samfélagstengsla Brims, Ragna Sara Jónsdóttir, formaður valnefndar Umhverfisverðlauna atvinnulífsins, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Ingólfur Steingrímsson, forstöðumaður innkaupa og rekstrareftirlits Brims og Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur SFS í umhverfismálum.

Kronan_1570634685526

Krónan fékk verðlaun fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin og veitti Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar þeim viðtöku en hún er fyrir miðju á myndinni hér fyrir ofan. Viðurkenninguna fær Krónan fyrir að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og sýna frumkvæði með nýjum verkefnum til að draga úr sóun og umhverfisáhrifum fyrirtækisins. „Við hjá Krónunni erum mjög stolt af þessari viðurkenningu. Við erum svo lánsöm að vera með frábært starfsfólk sem er tilbúið að leggja heilmikið á sig til að innleiða breytingar í þágu umhverfisins. Það skiptir máli fyrir starfsandann að vera virkur þátttakandi í þessum mikilvægu breytingum sem umhverfið kallar svo sterkt á. Viðskiptavinir okkar hafa sýnt það í verki að þeir eru alltaf fyrst og fremst í liði með umhverfinu og hafa tekið virkan þátt í þessu ferðalagi með okkur með því að senda okkur hugmyndir og með því að benda okkur á það sem betur mætti fara. Við vitum að við eigum enn langt í land en við höfum tekið mörg skref í rétta átt og erum hvergi nærri hætt. Þessi viðurkenning er okkur enn meiri hvatning til að halda áfram á þessari vegferð, enda ljóst að það er engin framtíð nema með umhverfismálin á oddinum.“

Í valnefnd Umhverfisverðlauna atvinnulífsins sátu Ragna Sara Jónsdóttir, formaður dómnefndar, Bryndís Skúladóttir og Sigurður M. Harðarson.

Umhverfisdagur atvinnulífsins er árlegur viðburður en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Á vef SA er hægt að horfa á myndbönd um fyrirtækin tvö sem hlutu viðurkenningarnar.

Á Facebook er hægt að skoða myndir frá deginum.