Engar forsendur fyrir uppsögn kjarasamninga
„Það vekur auðvitað athygli að það sé verið að hóta uppsögn kjarasamninga á sama tíma og kaupmáttarforsendur kjarasamninganna hafa augljóslega gengið eftir,“ segir Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, meðal annars í frétt RÚV um forsendur kjarasamningsákvæðis um að verðbólga mælist ekki yfir 4,7% í ágúst 2026 en verðbólga mældist 5,3% í júlí. Þorsteinn setti inn færslu á Facebook um stöðuna.
„Þó svo að verðbólga hafi vissulega mælst meiri þá hafa launahækkanir verið það líka. Þegar horft er til baka erum við að sjá að, miðað við áætlaða útkomu fyrir 2026, erum við með tæplega 6% kaupmáttaraukningu yfir þriggja ára tímabil samanborið við kannski liðlega 4% væntingar þegar kjarasamningar voru gerðir,“ segir Þorsteinn í frétt RÚV og vísar þar til þjóðhagsspár Hagstofunnar í apríl 2024 þegar kjarasamningarnir voru gerðir. „Þannig að kaupmáttarþróun hefur verið meiri og það eru engar forsendur fyrir uppsögn kjarasamninga við þær kringumstæður. Þvert á móti má segja að svigrúm atvinnulífsins hafi augljóslega reynst miklu minna heldur en ráð hafði verið gert fyrir. Við erum að sjá það núna í hratt kólnandi hagkerfi þar sem atvinnuleysi er að aukast og verðbólga helst há.“
Á vef RÚV er hægt að lesa fréttina í heild sinni.
RÚV, 12. ágúst 2026.
Einnig er fjallað um færslu Þorsteins í fréttum Sýnar þar sem kemur fram að Þorsteinn vísi því á bug að forsendur kjarasamninga séu brostnar en kalli eftir lægri álögum á fyrirtæki og einföldun regluverks til að sporna gegn samdrætti.

