Beint í efni

Blikksmíði í svið­s­ljós­inu á TikTok

Blikksmíði

Félag blikksmiðjueigenda hefur opnað TikTok-rás þar sem áhugasamir geta kynnt sér blikksmíði, námið og þau fjölbreyttu verkefni sem blikksmiðir sinna. Á rásinni eru þegar komin nokkur myndbönd sem veita innsýn í fagið.

Markmiðið er að auka vitund um þessa löggiltu iðngrein sem margir þekkja lítið til. Blikksmíði er tæknileg og fjölbreytt grein sem býður upp á góða atvinnu- og tekjumöguleika til framtíðar.

Að mati félagsins er mikil þörf fyrir hæft starfsfólk í greininni og núverandi samdráttur í mannvirkjaiðnaði breytir hvorki þeirri þörf til skemmri né lengri tíma. Með kynningunni vill félagið vekja áhuga fleiri á náminu og þeim tækifærum sem felast í faginu.

Skoðaðu myndböndin á TikTok-rás Félags blikksmiðjueigenda.