Vinnustofa um vernduð afurðaheiti fer fram 13. október í Húsi atvinnulífsins Borgartúni 35 á vegum GIFT sem er samstarfsverkefni Háskólans í Helsinki í Ruralia Institute, ráðuneytis matvæla veiða og sjálfbærni í Grænlandi, Local enterprice office í Donegal á Írlandi og upprunamerkisins Íslenskt lambakjöt (e. Icelandic Lamb). Vinnustofan sem fer fram á ensku er haldin í samstarfi við Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Samtök iðnaðarins. Hér er hægt að skrá sig.
Vernduð afurðaheiti á norðurslóðum er viðfangsefni GIFT, Geographical Indication boosting Food, Non-food and Tourism sectors in Northern areas, og er styrkt af Interreg NPA. Vernduð afurðaheiti (e. Geographical Indications) er upprunaverndar og gæðakerfi sem er rekið af ESB fyrir matvörur, drykki, náttúruleg hráefni og handverk. Lönd utan ESB eins og Ísland nota kerfið í gegnum samninga en kerfið er í notkun í öllum heimsálfum. Í þessu upprunaverndarkerfi í heimi eru um 4.000 skráningar en undir það falla t.d. frægar evrópskar vörur eins og Parma Ham, Feta ostur, Kampavín o.fl. Íslenskt lambakjöt (e. Icelandic Lamb) er fyrsta og enn sem komið er eina íslenska afurðin með gagnkvæma skráningu í ESB. Íslenska skráningu hafa einnig íslensk lopapeysa, íslenskt gin og íslenskt viskí.
Markmið verkefnisins er fræðsla um kerfi verndaðra afurðaheita, vekja athygli í notkun þess fyrir nýja umsækjendur, t.d. íslenska framleiðendur. Það er Hugverkastofa sem annast umsóknir og samskipti við áhugasama.
Hér er dagskrá vinnustofunnar:




