Fréttasafn



26. feb. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Fagaðilar í iðnaði fordæma vinnubrögð verkalýðshreyfinga

Að forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar semji við erlenda aðila um innflutning á húsum, innréttingum og húsgögnum, á sama tíma og þeir eiga að standa vörð um innlenda framleiðslu, vernda störf, halda við kunnáttu í handverki og tryggja réttindi þeirra starfsmanna sem vinna þessi störf, ber heilindum þeirra ekki gott vitni. Það er heldur ekki sannfærandi vitnisburður um getu þeirra til að sinna þeim störfum sem þeim hefur verið falið. Þetta segir í ályktun Fagaðila í iðnaði dagsett í dag með yfirskriftinni Óforskömmuð vinnubrögð harðlega fordæmd. 

Það var fjölmennur fundur Fagaðila í iðnaði sem haldinn var í gær, sem í eru framleiðendur, starfsmenn og áhugamenn íslensks handverks og framleiðslu, sem fordæmir harðlega óforskömmuð vinnubrögð verkalýðshreyfingarinnar og þeirra aðila sem ganga freklega framhjá innlendri framleiðslu við innflutning á fullbúnum húsum, innréttingum og húsgögnum hingað til lands.

Innlend framleiðsla samkeppnisfær í verði og framleiðslutíma

Í ályktuninni segir að staðreyndin sé sú að innlend framleiðsla stenst ekki aðeins erlendu framleiðslunni snúning hvað varðar gæði og útlit, heldur sé mjög samkeppnisfær í verði og framleiðslutíma. Innlend verðmætasköpun sé grunnur að hagsæld í okkar samfélagi, ekki undirboð erlendis frá á kostnað íslenskra starfa.

Þá segir að skýrt dæmi um þessa ósvinnu sé hvernig íbúðafélagið Bjarg, félag sem stofnað sé af ASÍ og BSRB, hafi látið framleiða og flytja inn einingahús frá Lettlandi og beri fyrir sig að innlendir aðilar anni ekki því magni sem óskað sé eftir. Þetta sé alrangt og fundurinn mótmælir innihaldslausum og ósönnum málflutningi þeirra sem vinna með þessum hætti svo sterklega gegn hagsmunum launafólks í landinu.

Vanhæfi og afskiptaleysi gagnvart iðnaðarmönnum

Jafnframt kemur fram í ályktunni að málflutningur um fjölda erlendra iðnaðarmanna á Íslandi og getuleysi innlendra framleiðenda til framleiðslu sé  ekki samboðin þessum aðilum enda viti þeir betur þó þeir kjósi að skýla sér á bak við rökleysu af þessu tagi.

Í niðurlagi ályktunarinnar kemur fram að vinnubrögð verkalýðshreyfingarinnar og þeirra sem ganga með þessum hætti framhjá afar samkeppnishæfri innlendri framleiðslu sé áfellisdómur yfir þeim og lýsi vanhæfi þeirra og afskiptaleysi gagnvart iðnaðarmönnum hér á landi, fyrirtækjum og þeirri þekkingu sem hér sé til staðar. Hún sé eins og blaut tuska framan í andlit almennings á þeim tíma sem samstaða væri dýrmætari en sundurlyndi.

 

Fréttir af fundinum og ályktuninni:

Fréttablaðið, 26. febrúar 2019.

Viðskiptablaðið, 26. febrúar 2019.

Vísir, 26. febrúar 2019.