Fréttasafn



13. maí 2026 Almennar fréttir Félag blikksmiðjueigenda Mannvirki

Félag blikksmiðjueigenda í vinnuferð til Svíþjóðar

Fulltrúar Félags blikksmiðjueigenda, þeir Stefán Þ. Lúðvíksson, formaður félagsins, og Þorgils Helgason, framkvæmdastjóri félagsins, fóru í vinnuferð til Svíþjóðar í lok apríl þar sem þeir tóku þátt í fundum og heimsóknum á vegum norræns samstarfs blikksmiðjufélaga innan Nordisk Ventilation & Blikkenslagermesterforbund.

Félagið hefur um árabil tekið virkan þátt í norrænu samstarfi og þar hefur komið skýrt fram að sömu áskoranir varðandi mannafla og nýliðun brenna á öllum Norðurlöndunum. Mikil áhersla er lögð á að finna leiðir til að laða ungt fólk að iðngreininni og styrkja stöðu iðnmenntunar til framtíðar.

Í ferðinni sóttu fulltrúar félagsins norrænan fund í Stokkhólmi og Katrineholm þar sem meðal annars var farið yfir sænska módelið í iðnmenntun og aðstöðumálum tengdum náminu. Þar var einnig rætt hvernig best væri að nýta keppnir og viðburði sem öflugt markaðstól til að vekja athygli ungs fólks á blikksmíði og öðrum iðngreinum.

Á fundinum var jafnframt rætt um möguleikann á auknu skiptinámi milli Norðurlandanna. Slíkt samstarf gæti orðið mikil hvatning fyrir ungt fólk þar sem nemendur fengju tækifæri til að afla sér reynslu erlendis á meðan á námi stendur og kynnast ólíkum vinnubrögðum og menningu innan greinarinnar.

Einnig var fjallað um EuroSkills-keppnina sem haldin verður á næsta ári. Í umræðunum kom fram hugmynd um sérstakt NordicSkills-mót þar sem nemendur frá Norðurlöndunum kæmu saman og kepptu í blikksmíði. Sú hugmynd fékk góðar undirtektir og verður áfram til umræðu á næsta fundi samstarfshópsins í haust.

Í ferðinni heimsóttu fulltrúar félagsins einnig iðnskóla þar sem blikksmíði er kennd og fengu innsýn í hvernig Svíar nálgast iðnmenntunina. Þar fara nemendur meðal annars í fjögurra vikna verklegar lotur þar sem skólinn sér bæði um húsnæði og fæði meðan á dvölinni stendur. Sú nálgun vakti sérstakan áhuga enda talið mikilvægt að skapa nemendum góðar aðstæður til náms og starfsþjálfunar.

Ferðin þótti afar gagnleg og styrkti enn frekar tengsl og samstarf milli norrænna félaga innan greinarinnar.
Sérstaka athygli vakti að Amelie von Zweigbergk fyrrverandi menntamálaráðherra Svíþjóðar er komin í stjórnarformannsstöðu hjá skólanum í Katrinaholm og er dugleg að veita málum blikksmiða eftirfylgni við stjórnmálafólk þar í landi. 

E425f7d7-6e51-4a4f-9233-700d4246fb48-002-

A204d1a9-4678-461d-8994-bb046129bdf3-002-

B0249b96-1470-4797-a70e-b6a9ff094182

Ce369e12-5b10-4d41-9e18-61ab567d3fe5-002-

E425f7d7-6e51-4a4f-9233-700d4246fb48-002-