Framtíð Úrvinnlusjóðs til umræðu á fundi SVÞ, FA og SI
Samtök verslunar og þjónustu - SVÞ, Félag atvinnurekenda - FA og Samtök iðnaðarins - SI bjóða til morgunfundar með félagsfólki sínu mánudaginn 8. júní kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35, þar sem farið verður yfir stöðu Úrvinnslusjóðs, þróun EPR-kerfa á Íslandi, reynslu af öðrum rekstrarformum og hvaða valkostir kunna að vera raunhæfir til framtíðar.
Á síðustu árum hafa kröfur, umfang og fjárhagslegar skuldbindingar tengdar EPR-kerfum aukist verulega. Umræða um framtíð Úrvinnslusjóðs og fyrirkomulag endurvinnslugjalda er því ekki lengur eingöngu umhverfis- eða framkvæmdamál — heldur stefnumótandi hagsmunamál fyrir atvinnulífið.
Á fundinum koma saman fulltrúar atvinnulífs, sérfræðingar og lykilaðilar úr kerfinu til að ræða:
– hvernig núverandi fyrirkomulag hefur þróast,
– hvaða áskoranir og skuldbindingar eru fram undan,
– hvaða lærdóm má draga af öðrum ábyrgðar- og rekstrarkerfum,
– og hvort tilefni sé til frekara samráðs eða sameiginlegrar eftirfylgni atvinnulífsins.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður fjármálastjórum, framkvæmdastjórum og öðrum stjórnendum fyrirtækja sem bera umtalsverðan kostnað vegna endurvinnslugjalda og vilja fá skýrari mynd af stöðunni og mögulegum næstu skrefum.
Húsið opnar kl. 08:15 – Dagskráin hefst 08:30
Dagskrá
08:30 Opnun fundar
- Sagan á bak við Úrvinnslusjóð Hvað var, hvað er, hvert stefnir? Kristófer Már Marinósson, formaður Úrvinnslusjoðs
- Reynsla af sjálfstæðu kerfi á endurvinnslu Jón Óskar Hinriksson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar
- Reynsla af sjálfstæðu EPR-kerfi í sjávarútvegi Hildur Hauksdóttir, stjórnarkona Úrvinnslusjóðs og sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS
- Umfang Úrvinnslusjóðs og skuldbindingar Sandra B. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs og Daníel Gunnarsson, sérfræðingur hjá Úrvinnslusjóði
- Almennar spurningar úr sal
Skráning er nauðsynleg.
Hér er hægt að skrá sig.


