Fundur SI um íslenska raforkumarkaðinn
Samtök iðnaðarins efna til opins fundar um íslenska raforkumarkaðinn miðvikudaginn 16. október í Hörpu kl. 8.30–10.00. Yfirskrift fundarins er Íslensk raforka - ávinningur og samkeppnishæfni. Horft verður til þjóðhagslegs ávinnings af raforkuframleiðslu á Íslandi og mikilvægi þess að efla samkeppnishæfnina. Orkumál eru hluti af atvinnustefnu fyrir Ísland og verður á fundinum farið yfir uppbyggingu raforkumarkaðarins að undanförnu, samanburð við nágrannaríki og skoðað hvernig bæta megi rekstrarskilyrði í raforkumálum einstakra atvinnugreina.
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Ole Løfsnæs, sérfræðingur í raforkumálum hjá Norsk Industri
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
- Jóhannes Felixson, bakarameistari og eigandi Jóa Fel
- Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.