Beint í efni

Tækni- og hug­verka­iðn­að­ur hefur gert íslenskt hagkerfi stöðugra

Í nýrri greiningu SI kemur fram að með tilkomu tækni- og hugverkaiðnaðar hafi sveiflur í útflutningi þjóðarbúsins orðið 12–16% minni en þær hefðu ella orðið. Greinin sem hefur áttfaldast frá 2008 er ein af fjórum stoðum útflutnings á Íslandi og skilar 369 milljörðum króna í útflutningstekjur.

Vænta 77% fjölgunar starfsfólks í tækni- og hugverkaiðnaði

Í nýrri greiningu SI kemur fram að tækni- og hugverkaiðnaður sé ein af fjórum stoðum útflutnings á Íslandi. Útflutningstekjur greinarinnar námu 369 milljörðum króna árið 2025, sem er áttföldun frá árinu 2008. Greinin stendur undir 19% af útflutningstekjum þjóðarbúsins og hefur hún skilað um fjórðungi af öllum vexti útflutningstekna hagkerfisins frá árinu 2008. Framlag greinarinnar til landsframleiðslu nam ríflega 440 milljörðum króna á síðasta ári og í henni starfa um 18 þúsund manns.

Með tilkomu greinarinnar hafa sveiflur í útflutningi þjóðarbúsins orðið 12–16% minni en þær hefðu ella orðið. Í heimsfaraldrinum árið 2020 varð samdráttur útflutnings 25,6% í stað 32,0%, sem er 6,4 prósentustigum mildara högg. Í greiningunni er farið yfir þróun greinarinnar frá árinu 2008 og áhrif hennar á fjölbreytileika útflutnings og stöðugleika hagkerfisins.

Helstu niðurstöður

•        Tækni- og hugverkaiðnaður er stöðugasta útflutningsstoðin. Meðalvöxtur útflutningstekna greinarinnar var 13,3% á árunum 2008–2025 og breytileiki vaxtarins um fjórðungur af því sem mælist í sjávarútvegi og ferðaþjónustu og innan við fimmtungur af því sem mælist í orkusæknum iðnaði.

•        Greinin hefur dregið úr sveiflum í útflutningi þjóðarbúsins og með því sveiflum í hagkerfinu í heild. Hafa sveiflurnar í heildarútflutningi vöru og þjónustu hagkerfisins verið 12-16% minni á tímabilinu 2008-2025 vegna tilkomu tækni- og hugverkaiðnaðar. 

•        Útflutningstekjur greinarinnar ríflega áttfölduðust á tímabilinu 2008-2025, fóru úr 46 ma.kr. árið 2008 í 369 ma.kr. árið 2025. Greinin skilaði 24% af allri aukningu útflutningstekna hagkerfisins á tímabilinu. Hlutdeild greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbúsins jókst úr 7% í 19% á þessum árum.

•        Greinin hefur alla burði til að verða verðmætasta útflutningsstoðin undir lok þessa áratugar ef rétt er á málum haldið. Ræðst það af starfsskilyrðum greinarinnar – meðal annars skattahvötum vegna rannsókna og þróunar og framboði af STEAM-menntuðu fólki.

•        Tækni- og hugverkaiðnaður er sú útflutningsstoð sem hefur vaxið hraðast frá árinu 2008 og er önnur stærsta uppspretta vaxtar í útflutningi Íslands á tímabilinu. Greinin hefur orðið ein af fjórum meginstoðum útflutnings á þessum tíma.

•        Greinin skapar umtalsverðan hluta landsframleiðslunnar. Verðmætasköpun greinarinnar var um 440 ma.kr. á árinu 2025 sem svarar til 8,9% af landsframleiðslu.

•        Skattspor greinarinnar er stórt og vaxandi. Vítt skattspor greinarinnar nam 186 ma.kr. árið 2024 og þröngt skattspor 93 ma.kr., samanborið við 176 og 82 ma.kr. árið 2023 á sama verðlagi. Launatengd gjöld standa undir 85 af 93 milljörðum þrönga skattsporsins en greinin byggir á mannauði þar sem framleiðni og laun eru hærri en að jafnaði í öðrum greinum hagkerfisins.

Atvinnustefna Íslands og aðgerðaráætlun sem fylgir stefnunni er fagnaðarefni. Stefnan sem ríkisstjórnin samþykkti í apríl síðastliðnum gæti orðið stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið en í stefnunni er lögð mikil áhersla á tækni- og hugverkaiðnað. Í atvinnustefnunni felast tækifæri til að efla greinina, auka framleiðni og bæta lífskjör hér á landi.

Það er mat Samtaka iðnaðarins að áframhaldandi vöxtur hugverkaiðnaðarins sé mikilvæg forsenda þess að markmið Atvinnustefnu Íslands – Vaxtaráætlunar til 2035 um aukna framleiðni, verðmætasköpun og bætt lífskjör náist.

Árangurinn mun að miklu leyti velta á þeim aðgerðum sem ráðist verður í til að fylgja eftir metnaðarfullum markmiðum. Með því að setja samkeppnishæfni landsins í forgang og ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi getur íslenskur iðnaður leitt vöxt hagkerfisins.

Frá einni stoð til fjögurra

Hagkerfi Íslands stendur á fjórum meginstoðum útflutnings, en orkusækinn iðnaður, tækni- og hugverkaiðnaður, sjávarútvegur og ferðaþjónusta standa undir góðum lífskjörum hér á landi. Íslenskur útflutningur hefur gengið í gegnum grundvallarbreytingu. Árið 1965 komu 64,1% allra útflutningstekna frá sjávarútvegi og hagkerfið var í reynd einnar stoðar hagkerfi. Árið 2025 skiptast útflutningstekjurnar á fjórar stoðir: ferðaþjónustu með 31,6%, orkusækinn iðnað með 21,2%, tækni- og hugverkaiðnað með 18,6% og sjávarútveg með 18,1%. Aðrar greinar standa undir 10,5%.

Fjölbreyttari útflutningur hefur farið saman með stöðugra hagkerfi. Staðalfrávik árlegs hagvaxtar var 6,07 á árunum 1900–1965 en 4,00 á árunum 1965–2025, sem er 34% lækkun. Á mann mældist samdrátturinn í sveiflum 35%. Sveiflur í útflutningi minnkuðu enn meira: 42% í vöruútflutningi og 34% í útflutningi vöru og þjónustu. Með tilkomu tækni- og hugverkaiðnaðar hefur stöðugleiki aukist og þannig hefur sagan endurtekið sig þegar hagkerfið fór úr einni útflutningsstoð í þrjár.

Tvær af þessum fjórum stoðum teljast til iðnaðar þ.e. orkusækins iðnaðar og tækni- og hugverkaiðnaðar. Útflutningsverðmæti iðnaðar í heild nam um 40% af útflutningi Íslands árið 2025 og er iðnaður því stærsta útflutningsgreinin.

Þess má geta að báðar þessar stoðir útflutnings sem teljast til iðnaðar eru afrakstur atvinnustefnu stjórnvalda. Orkusækinn iðnaður varð til þegar ÍSAL, álverið í Straumsvík, hóf framleiðslu árið 1969 en Landsvirkjun var stofnuð árið 1965 í því skyni að gera orkusækinn iðnað að útflutningsstoð. Síðan þá hefur orkusækinn iðnaður eflst með tilkomu fleiri og fjölbreyttari fyrirtækja.

Áttföldun frá 2008-2025

Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hafa áttfaldast síðan 2008. Þær námu tæpum 46 mö.kr. það ár og 369 mö.kr. árið 2025. Á sama tíma tvöfaldaðist útflutningur sjávarútvegs og orkusækins iðnaðar og útflutningstekjur ferðaþjónustu tæplega fimmfölduðust.

Þegar útflutningur stoðanna er bornar saman á vísitöluformi sést hvað tækni- og hugverkaiðnaður skilur sig frá hinum. Vísitala útflutningstekna tækni- og hugverkaiðnaðar stóð í 808 stigum árið 2025 á grunni 2008 = 100, en hinar þrjár stoðirnar á 198 til 473 stigum.

Heildarútflutningstekjur þjóðarbúsins jukust um 1.341 ma.kr. frá 2008 til 2025, eða 208%. Ferðaþjónustan skýrir 37,0% af þeirri aukningu og tækni- og hugverkaiðnaður 24,1%, orkusækinn iðnaður 16,1% og sjávarútvegur 13,2%. Tækni- og hugverkaiðnaður er því sú útflutningsstoð sem hefur vaxið hraðast síðan árið 2008 og er önnur stærsta uppspretta vaxtar í útflutningi hagkerfisins á tímabilinu.

Vöxturinn í tækni- og hugverkaiðnaði hefur verið nær samfelldur síðan 2008. Útflutningstekjur greinarinnar jukust öll árin frá 2008 til 2025 nema eitt, árið 2016, þegar þær drógust saman um 3,3%. Hlutdeild greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbúsins fór úr 7,1% í 18,6% á sama tíma.

Greinin eykur stöðugleika útflutnings og hagkerfisins

Aukinn útflutningur tækni- og hugverkaiðnaðar felur í sér aukna verðmætasköpun, fjölgun vel launaðra starfa með mikilli framleiðni og aukinn fjölbreytileika í útflutningstekjum hagkerfisins og þar með aukinn efnahagslegan stöðugleika.

Fjölbreytni í útflutningi skilar sér í auknum stöðugleika heildarútflutnings og hagkerfisins ef nýja stoðin hegðar sér öðruvísi en þær sem fyrir voru. Mælingar sýna að svo er varðandi tækni- og hugverkaiðnaðinn.

Greinin sjálf sveiflast lítið

Vöxturinn í tækni- og hugverkaiðnaði hefur verið nær samfelldur síðan 2008. Útflutningstekjur greinarinnar jukust öll árin frá 2008 til 2025 nema eitt, árið 2016, þegar þær drógust saman um 3,3%.

Sé mældur breytileiki vaxtar frá ári til árs, það er hversu ójafnt greinarnar vaxa milli ára, mældist hann 0,52 í tækni- og hugverkaiðnaði á árunum 2008–2025. Í sjávarútvegi var það 2,21, í ferðaþjónustu 2,26 og í orkusæknum iðnaði 2,95. Greinin sameinar því næsthæsta meðalvöxt allra stoða (13,3% á ári, næst á eftir ferðaþjónustu með 17,8%) og lægsta breytileika með miklum mun. Lakasta ár hennar, 3,3% samdráttur árið 2016 var mun mildara en lakasta ár ferðaþjónustunnar (76,0% samdráttur árið 2020).

Greinin hreyfist öðruvísi en hinar stoðirnar

Vöxtur greinarinnar er í veikri neikvæðri fylgni (−0,23) við vöxt annars útflutnings: greinin vex þegar hinar stoðirnar gera það ekki, og það er einmitt sá eiginleiki sem dregur úr sveiflum í heildarútflutningi.

Þess vegna sveiflast hagkerfið minna

Til að meta áhrif greinarinnar á sveiflur í heildarútflutningi eru reiknaðar tvær grunnsviðsmyndir. Í hinni fyrri er hlutdeild tækni- og hugverkaiðnaðar í útflutningi fest við hlutfall ársins 2008 og öðrum útflutningi hliðrað í hlutfalli við það. Í hinni síðari standa útflutningstekjur greinarinnar í stað í 45,7 ma.kr. allt tímabilið.

Niðurstaðan er samhljóða á báðum mælikvörðum. Staðalfrávik árlegs vaxtar heildarútflutnings var 14,8 í raun, á móti 17,7 í fyrri grunnsviðsmyndinni og 16,9 í hinni síðari – sveiflurnar urðu því 16% og 12% minni en þær hefðu ella orðið. Samdráttur útflutnings í heimsfaraldrinum árið 2020 varð 25,6% í stað 32,0%, sem er 6,4 prósentustigum mildara högg.

Stórt skattspor tækni- og hugverkaiðnaðar

Stöðugleikinn sem greinin skapar nær ekki aðeins til útflutnings heldur einnig til tekna ríkis og sveitarfélaga. Tekjuskattur og útsvar launþega er stærsti einstaki liðurinn með 46,6 ma.kr., helmingur heildarinnar. Að viðbættu lífeyrisframlagi (25,2 ma.kr.) og tryggingagjaldi (13,3 ma.kr.) standa launatengdir liðir undir 85,1 ma.kr. af 92,8, eða 92%. Tekjuskattur fyrirtækja er 7,7 ma.kr. Þetta er tekjustofn sem hvílir á störfum og launum fremur en á hagnaði einstakra ára og er þar með stöðugri en skattspor sem byggir á afkomu.

Vítt skattspor tækni- og hugverkaiðnaðar nam 186 ma.kr. árið 2024 og þröngt skattspor 93 ma.kr. Skattsporið stækkaði milli ára: árið 2023 nam vítt skattspor 176 ma.kr. og þröngt skattspor 82 ma.kr. á verðlagi ársins 2024. Þröngt skattspor tekur til tekjuskatts fyrirtækja, tryggingagjalds, tekjuskatts og útsvars launþega ásamt mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð og viðbótarlífeyrissparnað. Vítt skattspor er þröngt skattspor að viðbættum útskatti virðisaukaskatts og fasteignaskatti.

Í samanburði nam vítt skattspor ferðaþjónustunnar 190 ma.kr. og þröngt skattspor hennar 108 ma.kr. árið 2024, en þröngt skattspor fiskveiða og -vinnslu tæplega 80 ma.kr. Skattspor tækni- og hugverkaiðnaðar er því á pari við ferðaþjónustu, þrátt fyrir að greinin sé rekin með fimmtungi færra fólki.[1]

Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar eru mjög mikilvægir

Fjárfesting í rannsóknum og þróun er undirstaða greinarinnar. Fjárfesting í R&Þ á Íslandi nam 2,48% af landsframleiðslu á árinu 2024, sem er yfir meðaltali ESB-ríkja (2,22%) en undir Bandaríkjunum (3,43%) og undir markmiði stjórnvalda um 3,5% af landsframleiðslu árið 2035.

Hlutur fyrirtækja í heildarfjárfestingu í R&Þ nemur nú 75% og hefur aldrei verið hærri frá því Hagstofa Íslands hóf mælingar árið 2014. Hlutfallið er hærra en að jafnaði í ESB (67%) en lægra en í Bandaríkjunum (78%).

Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar (R&Þ) eru eitt mikilvægasta tæki stjórnvalda til að stuðla að fjárfestingu í þekkingu og hugviti, aukinni framleiðni og uppbyggingu tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi. Kerfið hefur átt mikilvægan þátt í vexti tækni-  og hugverkaiðnaðarins. Um 96% skattahvata vegna R&Þ fara til fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði – kerfið er ekki markað einni grein heldur leitar þangað sem rannsóknirnar eru.

Í sýrslu OECD um íslenskt efnahagslíf frá 2023 kemur fram að aukning skattahvata vegna R&Þ hafi haft jákvæð áhrif á fjárfestingar fyrirtækja í R&Þ, á umfang og afkomu fyrirtækja og leitt til fjölgunar verðmætra starfa.

Ísland á í alþjóðlegri samkeppni um staðsetningu R&Þ-verkefna, höfuðstöðvar þekkingarfyrirtækja, sérfræðinga og fjármagn. Í þeirri samkeppni skiptir ekki aðeins fjárhæð stuðnings máli heldur einnig fyrirsjáanleiki, samfella, skýr afmörkun hæfs kostnaðar og skilvirk stjórnsýsla. Ef íslenska kerfið verður ófyrirsjáanlegra, þrengra eða stjórnsýslulega þyngra en sambærileg kerfi í ríkjum á borð við Írland, Bretland, Holland og Norðurlöndin getur það dregið úr fjárfestingu og hvata fyrirtækja til að byggja upp R&Þ-starfsemi hér á landi.

Greinin byggir á hugviti og mannauði

Hugvit og sérhæfður mannauður eru helstu auðlindir greinarinnar og hefur aðgengi að þeim verið hindrun á vexti hennar. Í könnun Gallup meðal stjórnenda í ársbyrjun 2026 sögðu 32% stjórnenda í tækni- og hugverkaiðnaði að skortur væri á starfsfólki í fyrirtækjum þeirra, á móti 21% í viðskiptahagkerfinu, og segja þeir skortinn helst vera á háskólamenntuðum sérfræðingum.

Væntingar um fjölgun starfa eru meiri í greininni en í nokkurri annarri grein viðskiptahagkerfisins: 74% stjórnenda sjá fram á að fjölga stöðugildum á næstu fimm árum, á móti 47% í viðskiptahagkerfinu. Á sama tíma telja 35% stjórnenda í greininni að mannauðsskortur muni standa í vegi fyrir vexti fyrirtækja þeirra á næstu fimm árum, en 25% í viðskiptahagkerfinu.

Íslenska menntakerfið mætir ekki þessari þörf í dag. Aðeins 40% stjórnenda í greininni telja að menntakerfið muni mæta færniþörf fyrirtækja þeirra vel á næstu fimm árum og 23% að það muni gera það illa. Til að brúa bilið treysta fyrirtækin á erlenda sérfræðinga, en þar er regluverkið hamlandi: heimiluð dvöl sérfræðinga sem færðir eru milli starfsstöðva sama fyrirtækis er tólf mánuðir á Íslandi á móti 32 mánuðum að meðaltali innan OECD.

Hvað er tækni- og hugverkaiðnaður?

Tækni- og hugverkaiðnaður er fjölbreytt atvinnugrein þar sem fyrirtækin eiga það sameiginlegt að verja stórum hluta veltu sinnar í rannsóknir og þróun og nýsköpun og eiga í mörgum tilfellum afraksturinn sem hugverk. Þar er meðal annars að finna fyrirtæki í upplýsingatækni og tengdri starfsemi, lyfjaframleiðslu, líf- og heilbrigðistækni, tölvuleikjagerð og fjölbreyttum hátækniiðnaði. Þessi fyrirtæki eiga þannig sameiginlegt viðskiptalíkan að mörgu leyti og mótast rekstur þeirra af sömu starfsskilyrðum, skattahvötum vegna rannsókna og þróunar, hugverkavernd og framboði af STEAM-menntuðu fólki. Umbætur stjórnvalda í þessum málaflokkum virka þvert á greinarnar og þess vegna er rétt að ræða um þær sem eina stoð.

Hagstofa Íslands skilgreinir greinina sem sjálfstæðan flokk og birtir tölur um veltu, útflutning og fjölda starfandi fyrir tækni- og hugverkaiðnað. Hagstofan hefur um nokkurra ára skeið birt þessar tölur og eru þær öllum aðgengilegar á vef Hagstofunnar. Hagstofa Íslands byggir tölur um greinina á ÍSAT2008-flokkun[2].

Mörg verðmætustu fyrirtæki Nasdaq Iceland tilheyra greininni. JBT Marel og Alvotech hafa verið byggð frá grunni á Íslandi, og önnur öflug fyrirtæki með rætur hér á landi eru meðal annars Embla Medical, Kerecis, Nox Medical og CCP. Sameiginlegt einkenni þeirra er að þau selja vörur og þjónustu á heimsmarkaði og að aðgangur að hugviti og sérhæfðum mannauði er þeirra helsta auðlind.

Raunverulegt umfang er meira en tölurnar segja. Virðiskeðja greinarinnar teygir anga sína langt út fyrir fyrirtækin sjálf: þau kaupa fjölbreytt aðföng og þjónustu af ótal aðilum úr öðrum geirum atvinnulífsins og ávinningurinn hríslast þannig um allt samfélagið.



[1] Heimild: Reykjavík Economics fyrir SI. Ekki liggur fyrir mat á víðu skattspori fiskveiða og -vinnslu

[2] Tækni- og hugverkaiðnaður samkvæmt flokkun Hagstofu Íslandis: ÍSAT2008: 20-21, 254, 26-30, 325, 58-63, 71-72

Hér er hægt að nálgast PDF af greiningunni.

Tækni- og hugverkaiðnaður hefur gert íslenskt hagkerfi stöðugra - Samtök Iðnaðarins