Talning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á íbúðum í byggingu, sem birt var í dag, sýnir fyrirsjáanlegan samdrátt íbúða í uppbyggingu. Niðurstöðurnar eru í samræmi við þróun íbúðauppbyggingar sem Samtök iðnaðarins hafa ítrekað varað við og endurspeglar þá alvarlegu stöðu sem komin er upp í greininni. Fram kemur í niðurstöðum talningarinnar að íbúðum í byggingu hefur fækkað um 11% frá því í mars. Íbúðum í uppbyggingu með óbreytta framvindu fjölgaði um 38% á milli talninga. Mesta athygli vekur að aldrei hafa jafn fáar íbúðir verið á fyrstu þremur framvindustigum íbúðauppbyggingar frá því að talningar HMS hófust í september 2021 og nýjar framkvæmdir á milli talninga HMS hafa aldrei verið færri. Sú staðreyndir kallar á viðbrögð stjórnvalda.
Minna framboð hækkar verðbólgu og vexti
Út frá talningunni segir HMS að horfur fyrir fullbúnar íbúðir litið til næstu tveggja ára hafi versnað frá því í mars-talningu stofnunarinnar. Uppfærð spá HMS gerir ráð fyrir að um 2.300 íbúðir verði fullbúnar á árinu 2027 og um 2.400 íbúðir verði fullbúnar árið 2028, samanborið við um 3.200 íbúðir áður. Samtök iðnaðarins benda á að minna framboð íbúða er til þess fallið að þrýsta upp verðbólgu og vöxtum.
Talning HMS á íbúðum í byggingu sýnir merki um samdrátt í byggingariðnaði og mannvirkjagerð sem nú má greina víða. Á vinnumarkaði sjást þau í auknu atvinnuleysi í greininni og fækkun starfandi. Einnig er veltan í greininni og sala á byggingarefnum að minnka. Vanskil í greininni hafa verið að aukast, hagnaður fyrirtækja að dragast saman og skuldir greinarinnar að vaxa. Vaxtabyrði lána greinarinnar er mikil enda vaxandi fjöldi óseldra íbúða á söluskrá. Svartsýni hefur aukist í greininni og telja nú mun fleiri efnahagsaðstæður vera slæmar en þeir sem telja þær góðar. Einnig telja mun fleiri stjórnendur í greininni að aðstæður muni versna á næstunni en þeir sem telja að þær muni batna.
Fyrirhuguð skattahækkun ríkisstjórnarinnar eykur vandann
Í ljósi alvarlegrar stöðu sem nú blasir við mótmæla Samtök iðnaðarins harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um að hækka skatta á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með því að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað úr 35% í 20%. Krefjast samtökin þess að fallið verði frá þeim áformum. Um er að ræða 3,6 ma.kr. aukna skattlagningu á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Lækkunin jafngildir 1,1–1,3 m.kr. skattahækkun á byggingarkostnaði 100 m² íbúðar.
Áformin munu draga enn frekar úr uppbyggingu íbúða, auka atvinnuleysi, ýta undir svarta vinnu og draga úr getu almennings til að viðhalda fasteignum sínum. Minna framboð nýrra íbúða leiðir til aukinnar verðbólgu og hærri vaxta. Samtök iðnaðarins telja tímasetninguna óásættanlega í ljósi þeirra samdráttarmerkja sem hér er lýst.




