Beint í efni

Um­hverf­is­fyr­ir­tæki ársins 2026 - opnað hefur verið fyrir til­nefn­ingar

Opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til umhverfisverðlauna Umhverfisdags atvinnulífsins 2026 sem verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00–15:15 og verður skráning auglýst fljótlega. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Hægt er að senda inn tilefningar fyrir Umhverfisfyrirtækis ársins 2026 til og með 10. október. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.

Í ár er horft sérstaklega til ábyrgrar ákvarðanatöku í umhverfismálum.

Nauðsynlegt er að skila inn rökstuðningi fyrir eftirfarandi þætti:

- Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi.

- Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni, til dæmis: hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel.

- Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið.

- Hefur sett sér aðgerðaráætlun í umhverfismálum sem inniheldur töluleg og tímasett markmið til þess að draga markvisst úr umhverfisáhrifum starfsemi fyrirtækisins.

- Hefur sett sér sjálfbærnistefnu og birt opinberlega, ásamt því að birta markmið og árangur sem náðst hefur.

- Getur sýnt fram á að umhverfismál hafi áhrif á ákvarðanatöku og að fyrirtækið þekki helstu áhættur og tækifæri sem tengjast umhverfismálum.

Hér er hægt að senda inn tilnefningu.