Fréttasafn



17. mar. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Fundur um einnota plastvörur - hvað er leyfilegt og hvað ekki?

Samtök iðnaðarins í samstarfi við Umhverfisstofnun standa fyrir opnum rafrænum fundi um einnota plastvörur fimmtudaginn 25. mars kl. 14.00-15.00.

Þann 3. júli næstkomandi tekur í gildi bann við að setja hinar ýmsu einnota plastvörur á markað og nýjar reglur um sölu eða aðra afhendingu á vörum úr plasti. Bannið hefur víðtæk áhrif á matvælaframleiðendur og brýnt að huga að þeim breytingum sem kunna að hafa áhrif á starfsemi fyrirtækja.

Á fundinum fer Gró Einarsdóttir, sérfræðingur á sviði loftlagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun, yfir hvað felst í banninu, hvað er leyfilegt og hvað ekki. Fjallað verður um hvað plast er, hvað einnota þýðir og hvaða lausnir standa til boða. Að erindinu loknu verður spuringum fundargesta svarað.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.