Góð mæting á árshátíð Félags blikksmiðjueigenda
Góð mæting var á glæsilega árshátíð Félags blikksmiðjueigenda á Hótel Kríunesi laugardaginn 9. maí. Dagskráin hófst um miðjan dag með rútuferð um Kópavog þar sem félagsmenn og makar heimsóttu áhugaverða staði. Fyrra stoppið var hjá Gæðingi brugghúsi þar sem hópurinn naut bjórsmökkunar og fræðslu um framleiðsluna. Að því loknu var haldið í heimsókn til Stjörnublikks þar sem boðið var upp á pinnamat og drykki í góðum félagsskap. Þar vakti ný og glæsileg beygjuvél fyrirtækisins sérstaka athygli gesta.
Um kvöldið tók við hátíðarkvöldverður á Hótel Kríunesi þar sem matur og drykkur var í boði félagsins. Formaður félagsins, Stefán Þ. Lúðvíksson, setti árshátíðina og nýtti tækifærið til að veita fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Hallgrími Atlasyni og Jóhanni Helgasyni, sérstakar viðurkenningar fyrir óeigingjörn störf í þágu blikksins um langt árabil.
Þá þakkaði formaðurinn einnig Kópavogsnefnd félagsins sérstaklega fyrir vel unnin störf við skipulag hátíðarinnar. Finnbogi Geirsson, Jóhann Helgason, Eyjólfur Ingimundarson og Sævar Kristjánsson báru hitann og þungann af undirbúningnum ásamt sínum betri helmingum og fengu kærar þakkir fyrir framlag sitt.
Einnig voru nýir stjórnarmenn félagsins, þeir Ingi Björn Róbertsson og Ingvar Hermannsson, boðnir velkomnir til starfa þegar formaðurinn kallaði þá upp á svið og óskaði þeim velfarnaðar í stjórnarsetunni.
Að loknum kvöldverði tók við lifandi tónlist þar sem leikið var fyrir dansi fram á kvöld. Árshátíðin þótti afar vel heppnuð og ríkti mikil ánægja meðal gesta með daginn í heild sinni.
Árshátíðargestir.
Stefán Þ. Lúðvíksson, Jóhann Helgason og Hallgrímur Atlason.
Stefán Þ. Lúðvíksson, Ingi Björn Róbertsson og Ingvar Hermannsson.

