Fréttasafn



10. feb. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Góð mæting á fund SI um útboðsmál í mannvirkjaiðnaði

Góð mæting var á fræðslufund SI fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði um útboðsmál sem fór fram í gær. Fundurinn fór fram bæði í Húsi atvinnulífsins og í beinu streymi. 

Á fundinum fór Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar og hlutverk SI. Þá fór Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum, yfir algeng mistök og hvað bæri að varast í útboðsferlinu. 

Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI. 

5_1770727284152

4_1770727306246Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum.

3_1770727326842

6_1770727343879

2_1770727357116Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, sá um beina streymið.