Við höfum kallað eftir því að auknu fjármagni sé beint bæði í viðhald og uppbyggingu og okkar krafa hefur verið sú að þeir fjármunir sem aflað er af bifreiðum í formi gjalda og skatta sé beint í uppbyggingu og viðhaldi á vegakerfinu en það hefur því miður ekki verið svoleiðis segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, meðal annars í í Síðdegisútvarpi Rásar 2 þar sem rætt er um nýja greiningu SI. Hann segir að Samtök iðnaðarins hafi metið innviðaskuldina reglulega frá árinu 2017 og þar hafi komið fram að hún sé vaxandi, sérstaklega í vegakerfinu og ástand vegakerfisins sé metið slæmt. „Við fórum í þessa greiningu til þess að fara yfir tölurnar og þegar við lítum til þessa tímabils 2019-2025 þá voru tekjur ríkisins af þessum gjaldstofnun af bifreiðum 338 milljarðar samanborið við 255 milljarða sem fór í heildarútgjöld til vegamála. Þetta merkir að af hverjum þúsund krónum sem ríkið innheimtir í tekjur á þessu tímabili eru 250 krónur að fara í eitthvað allt annað. Á sama tíma er innviðaskuldin vaxandi. Þetta er alvarlegt.“ Ingólfur segir að þegar horft sé á fjárlagafrumvarpið sé að gliðna þarna á milli. Þannig að af hverjum þúsund krónum sem á næsta ári sé ætlað að afla í tekjur af bifreiðum séu 400 krónur að fara í eitthvað annað. „Það er að aukast sá hluti. Þetta er eitthvað sem við viljum ekki sjá.“
Ingólfur segir að Samtök iðnaðarins hafi viljað sjá að útgjöldin til vegamála myndu aukast vegna þess að innviðaskuldin sé vaxandi og í leiðinni mótmæli samtökin þessari miklu hækkun sem er að verða á gjaldtökunni. „Kannski sérstaklega bendum við á í því sambandi kílómetragjaldið sem er að hækka um rétt tæplega 16% á á milli ára sem er veruleg hækkun. Kílómetragjaldið er núna stærsti þátturinn í gjaldtöku ríkisins af bifreiðunum og vegur rétt ríflega helming af heildargjaldtökunni og okkur finnst þetta nú vera að bæta ansi ríflega í á sama tíma er verið að skera niður í útgjöldum til framkvæmda á þessu sviði.“
Á vef RÚV er hægt að hlusta á viðtalið við Ingólf í heild sinni.
Síðdegisútvarp Rásar 2, 7. október 2026.
Þarf að lækka innviðaskuldina en ekki bæta við hana
„Skattar og gjöld af bifreiðum eiga að renna óskert til uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins. Þannig hefur því miður ekki verið síðustu ár og gangi áformin eftir sem ríkisstjórnin boðar nú í frumvarpinu mun sá munur aukast umtalsvert,“ segir Ingólfur í samtali við Morgunblaðið. Hann segir í frétt Morgunblaðsins að ástand vegakerfisins kalli á aukin framlög en ekki minni. „Ástand vegakerfisins er mjög slæmt og við þurfum að lækka innviðaskuldina, ekki bæta við hana. Það þarf að beina meira fjármagni til uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins.“ Þá segir Ingólfur fyrirhugaða þróun sem komi fram í fjárlagafrumvarpinu feli í sér frekari skuldsetningu í vegakerfinu. „Sú leið sem farin er í frumvarpinu er í raun leið aukinnar skuldsetningar. Þegar viðhaldi og nauðsynlegum nýfjárfestingum í vegakerfinu er ekki sinnt nægjanlega hverfur kostnaðurinn ekki. Honum er einfaldlega velt yfir á framtíðarkynslóðir sem þurfa að greiða reikninginn af innviðaskuld síðustu ára.“
Morgunblaðið / mbl.is, 8. október 2026.




