Fréttasafn



11. sep. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Menntun

Góður árangur íslensku keppendanna á Euroskills

Fjórir íslenskir keppendur hlutu viðurkenningu á Evrópumóti iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills, sem fór fram í Gdańsk í Póllandi dagana 5.- 9. september. Það voru ellefu ungir og efnilegir keppendur frá Íslandi sem tóku þátt í jafn mörgum iðn- og verkgreinum, en Ísland hefur aldrei átt jafn marga þátttakendur og á Evrópumótinu í ár. Næsta Euroskills fer fram árið 2025 í Herning í Danmörku.

Í tilkynningu segir að verðlaunaafhending og lokaathöfn Euroskills 2023 hafi farið fram með pomp og prakt á stórum íþróttaleikvangi í Gdańsk frammi fyrir þúsundum áhorfenda. Þó Ísland hafi ekki átt verðlaunahafa á mótinu að þessu sinni náðu fjórir íslenskir keppendur framúrskarandi árangri og hlutu viðurkenninguna „Medallion for Excellence“. Þá fékk Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólanum á Akureyri, sérstök verðlaun fyrir að vera stigahæsti keppandinn í íslenska landsliðinu, en hún keppti í hársnyrtiiðn.

Íslensku keppendurnir sem hlutu viðurkenninguna „Medallion for Excellence“:

  • Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólanum á Akureyri, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í hársnyrtiiðn.
  • Finnur Guðberg Ívarsson, Hótel- og matvælaskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í bakaraiðn.
  • Benedikt Máni Finnsson, Tækniskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í iðnaðarstýringum.
  • Hinrik Örn Halldórsson, Hótel- og matvælaskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í matreiðslu.

Georg Páll Skúlason, formaður Verkiðnar / Skills Iceland: „Árangur íslenska landsliðsins var mjög góður og andinn í hópnum var frábær. Það sem er kannski mikilvægast er að keppendur hafa safnað mikilvægri reynslu og minningum sem þau varðveita til framtíðar. Ísland hefur aldrei sent jafn marga fulltrúa í Euroskills, en ætla má að íslenski hópurinn hafi talið um 40 manns með þjálfurum og aðstoðarfólki. Ég er afskaplega stoltur af þessum hópi og er sannarlega bjartsýnn á framtíðina þegar kemur að iðn- og verknámi á Íslandi.“ 

Á myndinni er íslenski landsliðshópurinn á lokaathöfn Euroskills 2023 sem fram fór í Gdańsk í Póllandi ásamt Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra.