Fréttasafn



30. des. 2020 Almennar fréttir Innviðir Menntun Nýsköpun Starfsumhverfi

Heimatilbúnir fjötrar sem verður að leysa

Í ár höfum við upplifað mesta efnahagsáfall í lýðveldissögunni. Um þessar mundir hækka laun samt sem áður á sama tíma og atvinnuleysi er í sögulegu hámarki. Verkalýðsforystan stendur fast við boðaðar launahækkanir nú um áramótin og virðist ekki sjá ástæðu til þess að verja störf í landinu með því að draga í land. Fyrirtækin þurfa að hagræða í enn ríkari mæli þannig að boðaðar launahækkanir nú hvetja til aukins atvinnuleysis og vandinn eykst. Þessir fjötrar eru heimatilbúnir og þá verður að leysa. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í grein sinni í Markaðnum.

Okkar fólk sent í keppni með 30 aukakíló á bakinu

Sigurður segir að ryðja verði hindrunum úr vegi. Stjórnvöld hafi að mörgu leyti staðið sig vel í því að ryðja hindrunum úr vegi en mikið verk sé enn óunnið. „Samkeppnishæfni er nokkurs konar heimsmeistaramót þjóða í lífsgæðum og þar skipta fjórir þættir meginmáli, menntun, innviðir, nýsköpun og starfsumhverfi. Bylting er að eiga sér stað varðandi iðnnám og metnaður er fyrir því að menntakerfið styðji við vöxt hugverkaiðnaðar. Umgjörð nýsköpunar hefur batnað verulega, sérstaklega á þessu ári og styður það við fjórðu stoðina. Auknu fjármagni hefur verið varið til innviðauppbyggingar en innviðir landsins hafa verið fjársveltir um margra ára skeið. Regluverkið hér á landi er óþarflega íþyngjandi og starfsumhverfi fyrirtækja því ekki sem best verður á kosið. Með líkingu má segja að okkar fólk sé sent í keppnina með 30 aukakíló á bakinu og við skiljum ekki í því að það komi ekki á sama tíma í mark og erlendir keppinautar. Þarna eru heimatilbúnir fjötrar sem þarf að leysa og spilar ríkisvaldið lykilhlutverk í því.“

Vöxtur en ekki aukin skattlagning

Þá segir Sigurður í grein sinni að efnahagsleg framtíð Íslands ráðist af því hversu hratt takist að efla hugverkaiðnað, fjórðu stoðina, á sama tíma og hlúð sé að því sem fyrir er, enda sé vöxtur leiðin fram á við en ekki aukin skattlagning. Þannig verði til eftirsótt störf og aukin verðmæti til að standa undir lífsgæðum landsmanna. Hugverkaiðnaður byggi fyrst og fremst á mannauði en ekki á náttúruauðlindum eins og hinar útflutningsstoðirnar þrjár. Með umbótum á síðustu árum hafi stjórnvöld gert jarðveginn frjóan og frumkvöðlar hafi sáð fræjum í þann frjóa jarðveg. „Meira þarf til og ganga verður hreint til verks. Þessi uppbygging má ekki bíða.“

Hér er hægt að lesa grein Sigurðar í heild sinni. 

Fréttablaðið, 30. desember 2020.