Beint í efni

Netnámskeið fyrir félagsmenn SI um umsóknir í Vinnu­staða­náms­sjóð

Rafmennt fagnar reglugerð um vinnustaðanám

Fyrirtæki geta nú sótt um styrki til að taka við nemendum í vinnustaðanám eða starfsþjálfun. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember kl. 15.00. Samtök iðnaðarins standa fyrir netnámskeiði fyrir félagsmenn SI þar sem farið verður yfir hvernig fyrirtæki geta sótt um styrki úr sjóðnum mánudaginn 26. október kl. 8.30-9.30.

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja sem taka við nemendum í löggiltum iðngreinum eða heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinum á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám eða starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki til að taka þátt í menntun og þjálfun framtíðarstarfsfólks og auðvelda nemendum að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Fjárhæð styrkja ræðst af fjárveitingum til sjóðsins og fjölda umsókna.

Umsóknum þarf að skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar um styrkinn og umsóknir

Innskráning í umsóknarkerfi Rannís

Netnámskeiðið

Hulda Birna Kjærnested, viðskiptastjóri hjá SI og stjórnarmaður í Vinnustaðanámssjóði, mun leiða þátttakendur í gegnum umsóknarferlið og veita hagnýtar upplýsingar um það sem fyrirtæki þurfa að hafa í huga þegar sótt er um.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

  • Hverjir geta sótt um? Farið verður yfir hvaða fyrirtæki og vinnustaðir uppfylla skilyrði fyrir styrkveitingu.
  • Hvaða gögn þarf að leggja fram? Farið verður yfir hvaða upplýsingar og fylgigögn þurfa að liggja fyrir áður en umsókn er send inn.
  • Hvernig er sótt um? Farið verður yfir umsóknarferlið og helstu atriði sem þarf að gæta að.
  • Hvers vegna var umsóknum hafnað í fyrra? Farið verður yfir ástæður þess að umsóknir hlutu ekki samþykki og hvernig fyrirtæki geta komið í veg fyrir algeng mistök.

Netnámskeiðið er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki til að undirbúa umsóknir sínar og fá svör við spurningum áður en umsóknarfrestur rennur út.

Skráning á námskeiðið: ,,Að sækja um Vinnustaðanámssjóð"