HMS kynnir uppbyggingaráform fyrir tekju- og eignaminni
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, stendur fyrir opnum kynningarfundi þriðjudaginn 20. júní kl. 12 í Borgartúni 21 þar sem kynnt verða uppbyggingaráform íbúða fyrir tekju- og eignaminni. Á fundinum verður tilkynnt um úthlutun stofnframlaga frá ríki og sveitarfélögum. Innviðaráðherra kynnir úthlutun stofnframlaga og stóraukið fjármagn stjórnvalda til byggingar íbúða á viðráðanlegu verði. Fundinum verður streymt á hms.is/streymi.
Dagskrá
11:45-12:00 Húsið opnar. Léttar veitingar í boði.
12:05 - 12:30 Kynning á áætlunum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum - Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
12:30-12:40 Uppbyggingaráform sveitarfélaga - Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
12:40-12:50 Fjölgun leiguíbúða á viðráðanlegu verði - Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri lánasviðs hjá HMS
Á vef HMS er hægt að skrá sig.