Hring eftir hring eftir hring
Hring eftir hring eftir hring er yfirskrift ársfundar Samáls sem verður haldinn fimmtudaginn 25. maí kl. 8.30 til 10.00 í Norðurljósasal Hörpu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00 og kaffispjall og netagerð að loknum fundi. Á fundinum verður rætt um áskoranir og lausnir í sjálfbærni, nýsköpun og loftslagsmálum.
Fundarstjóri er Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls.
Dagskrá
8:00 - Morgunverður.
8:30 - Ársfundur.
- Staða og horfur í íslenskum áliðnaði
Rannveig Rist, stjórnarformaður Samáls og forstjóri ISAL - Ávarp
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Steinunn Dögg Steinsen, yfirmaður öryggis- og umhverfismála hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls.
- Hringrás og hönnun
Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður - Nýsköpun í áliðnaði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sunna Ólafsdóttir Wallevik, stofnandi og framkvæmdastjóri Gerosion - Hring eftir hring eftir hring
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls
10:00 - Kaffispjall að loknum fundi.
Fundurinn er öllum opinn og fer skráning fram á Samal.is