Fréttasafn



25. sep. 2017 Almennar fréttir

Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent á morgun

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, afhendir Hvatningarverðlaun jafnréttismála á morgun þriðjudaginn 26. september í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 8.30-10. Verðlaunin verða afhent í fjórða sinn en áður hafa Íslandsbanki, Orkuveita Reykjavíkur og Rio Tinto Alcan hlotið verðlaunin. 

Að verðlaununum standa Samtök atvinnulífsins, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð. Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

Nánari upplýsingar og skráning á vef SA.