Iðnaðarnjósnir eru raunveruleg og vaxandi ógn
„Þetta er raunveruleg ógn og þetta er vaxandi ógn og þetta er skipulögð glæpastarfsemi. Þannig að þarna eru hópar sem eru mjög færir í þessum árásum,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI í fréttum Stöðvar 2 um iðnaðarnjósnir en í fréttinni kemur fram að netöryggissérfræðingar hafi nýverið varað við hættulegum hópum netþrjóta sem geri atlögu að íslenskum innviðum og fyrirtækjum, meðal annars í þeim tilgangi að komast yfir viðkvæmar upplýsingar, til að mynda viðskiptaleyndarmál og hugverk.
Í fréttinni kveðst Sigurður ekki vita um staðfest dæmi um iðnaðarnjósnir sem hafi heppnast á Íslandi, en ógnin sé fjölþætt. „Það er í fjárhagslegum tilgangi, til þess að valda skaða og jafnvel til þess að komast yfir einhvers konar upplýsingar eða gögn. Þetta er stórt vandamál.“
Í fréttinni segir að víða erlendis, meðal annars á Norðurlöndum, hafi það færst í aukana að stórfyrirtæki, til að mynda í lyfja- og tæknigeira séu farin að gera bakgrunnsrannsóknir á starfsfólki áður en það er ráðið inn til að gæta að öryggi. „Við höfum ekki heyrt kannski um það. En ég efast ekki um það að það hafi orðið vitundarvakning í þessum málum þannig að það eru allir meira á varðbergi og passa upp á þessa hluti. Og það er auðvitað mikið mál að hleypa einhverjum inn á tölvukerfi, hvort sem að það er starfsmaður eða einhver annar.“
Vísir, 9. júní 2024.
Stöð 2, 9. júní 2024.